Æskan - 01.11.1964, Blaðsíða 35
ÆSKAN
Davíð
Copperfield.
Þetta sígilda listaverk heimsbók-
menntanna er nú komið út í heild hjá
Bókaútgáfu Æskunnar. Þessi bók verð-
ur sú vinsælasta, sem íslenzkt æskufólk
á völ á fyrir jólin.
Höfundur sögunnar Davíð Copper-
field, enska skáldið Charles Dickens,
fæddist í Portsmouth 7. febrúar 1812.
Foreldrar hans fluttust til London, er
hann var í bernskuskeiði. Efnahagur
þeirra varð síðar mjög bágur, og
kynntist Dickens því miklu fátæktar-
basli á æskuárum sínum. En hann
kynntist einnig merkilegum bók-
menntum, því að faðir hans átti dá-
lítið safn úrvalsbóka, og í þeim las
Dickens oft, þegar jafnaldrar hans
voru að leikum.
Þegar Dickens komst til fullorðins-
ára, gerðist hann blaðamaður, en tók
jafnframt að rita skáldsögur, er brátt
vöktu fádæma athygli og vinsældir um
gervallt Bretland og síðar víða um
lönd. Hafa skáldsögur hans verið
þýddar á um 70 tungumál. Dickens
var skáld af guðs náð. Skyggni hans
á mannlegt líf var frábært, enda eru
lýsingar hans bráðlifandi. Hann var
meinfyndinn og bitur í senn, enda
1 DAVÍÐ
Í COPPER P1KLD
1«
auðnaðist honum að skapa söguhetjur,
sem seint munu gleymast. Dickens
andaðist 9. júní 1870. Var lík hans,
samkvæmt ósk ensku þjóðarinnar,
flutt til Westminster Abbey í London,
þar sem leifar ýmissa frægustu sona
Bretlands eru geymdar.
Sagan Davíð Copperfield er talin
vera ævisaga Dickens sjálfs, klædd í
skáldlegan búning. Margt í henni
styðst við raunverulega atburði úr lífi
skáldsins, og fyrirmyndir ýrnissa sögu-
hetjanna eru vel kunnar. Sagan er að
vissu leyti merkilegri fyrir bragðið.
Þar er lýst örðugri lífsbaráttu ungs
manns, og er sagan víða áhrifamikil
og vel til þess fallin að vekja viðbjóð
á harðýðgi og ruddaskap, en jafnframt
trú á sigur hins góða. Þýðingu bókar-
innar gerði Sigurður Skúlason. Bókin
er prýdd mörgurn myndum.
Hart
á móti hörðu.
Þessi fræga drengjasaga eftir Dag
Christensen,, í þýðingu Guðmundar
G. Hagalíns, sem stóð til að kærni út
hjá Bókaútgáfu Æskunnar nú í des-
ember, hefur tafizt, og kernur því
ekki út fyrr en á næsta ári.
Illlllllllllllllllllílllllll!lllillllillllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!llllllllllllllllllllll!ll!l!!lllllllllll!llllllllll||||