Æskan

Árgangur

Æskan - 01.11.1964, Blaðsíða 50

Æskan - 01.11.1964, Blaðsíða 50
ÆSKAN nema hvað ég heyrði herra Peggotty segja og eins fólkið i gistihúsinu. Kvöld eitt, tveim dögum áður en við ætluðum að leggja af stað lieim, liitti ég Steerforth aleinan lieima hjá herra Peggotty. Hann sat þar og starði inn í glóðirnar í eld- slónni, og það lá við, að hann yrði bæði hræddur og reiður, þegar ég kom og vakti hann af þessum dag- draumum. „Hvað er nú að þér, Steeríorth?“ varð mér að orði, ,,þú ert eitthvað svo mæðulegur á svipinn." „Æ-já, ég sat hér og var að reyna að ímynda mér, að iólkið, sem við hittum hér svo glatt og kátt fyrsta kvöld- ið, sem við vorum hérna, væri allt steindautt eða tvístr- að út í veður og vind. .. . Æ, engillinn minn, bara ég fiefði átt föður, sem hefði stjórnað mér og haldið í hemilinn á mér!“ „Hvað er að })ér, Steerforth minn?“ spurði ég forviða. „Ég er óánægður með allt og alla og sjálfan mig í þokkabót! Ó, að það hefði verið einhver til þess að halda aftur af mér! Það vildi ég, að Guð gæfi, að ég gæti sjálíur haft hemil á mér!“ Ég hafði aldrei séð Steerforth svona á sig kominn, og mér fór ekki að verða um sel. En skömmu síðar fór hann að hlæja og sagði, að þetta hefði bara verið duttl- ungakast, sem hefði dottið í sig, af þvi að hann hefði setið þarna aleinn. Skömmu síðar kom frú Gummidge með kiirfu á hand- leggnum. Hún hafði verið úti að kaupa ýmislegt og sagði okkur, að herra Peggotty væri ekki væntanlegur heim fyrr en seint um kvöldið, og að Ham væri að sækja Millu. Þegar Steerforth var búinn að grínast dálítið við frú Gummidge, tók hann í handlegginn á mér, og síðan fórum við leiðar okkar. „Heyrðu, engillinn minn,“ sagði Steerforth, þegar við vorum komnir út, „veiztu, að hann Littimer er kominn hingað með bréf frá henni mömmu! . . . Nú förum við héðan, og ég læt hann verða hér eftir! ... Þú veizt, að ég er búinn að kaupa bát, sem Peggolty á að stýra. . .. Það á að setja á hann rá og reiða, og Littimer á að líta eítir verkinu!" Ég hafði ekki hugmynd um, að Steerforth hefði fest kaup á bát, en það gladdi mig að heyra það, því að ég var sanníærður um, að hann hafði gert það vegna herra Peggotty. Þegar við vorum búnir að labba spottakorn, mættum við þeim Millu og Ham. Þau komu gangandi og leidd- ust, og Ham Ijómaði í framan af gleði, en þegar Milla sá okkur, kippti hún að sér handleggnum og stokkroðnaði. Við spjölluðum dálítið við þau og héldum síðan áfram, en skömmu síðar litum við þó um öxi og horfðum á eftir þeim. „Nei, sjáðu,“ sagði Steerforth, „það eltir hana Millu einhver skuggi. ... Hvað skyldi það vera?“ „O, ]jað er líklega betlari," anzaði ég. „Við skulum halda áfram!" Þetta kvöld borðaði ég með Steerforth og kom frem- ur seint heim til Peggotty. Þegar ég kom þangað, sá ég mér til mikillar undr- unar, að Ham var að spígspora fram og aftur fyrir utan húsið. „Af hverju eruð þér hér á gangi, Ham?“ spurði ég. „Það er af því, að hún Milla litla er þarna inni og er að tala við einhverja manneskju, sem hún er gamal- kunnug, en ætti alls ekki að hafa nein kynni af.“ „Það er þó ekki stúlkan, sem við sáum þarna úti á almenningnum, þegar við mættum ykkur?“ spurði ég. „Jú, það er engin önnur en hún,“ anzaði Ham. „Hún elti okkur og hvíslaði að Millu: „Hjálpaðu mér í öllum guðanna bænum, Milla mín! . . . Einu sinni var ég eins og þú ert núna. . . . Hjálpaðu mér!“ . . . Milla þorði ekki fyrir nokkurn mun að fara með hana lieim til okkar, en vísaði henni hingað! Hún má ekkert aumt sjá, hún Milla. .. . En hún ætti nú alls ckki að virða svona manneskju viðlits. Þetta er alræmd kvensnift, og það er hreinasta bæjarskömm að henni. Marta heitir hún. En Milla hefur verið með henni þarna í saumastofunni. . . . Og ég get ekki neitað henni Millu um neitt, allra sízt, þegar hún biður mig með tárin í augunum! ... Sjáið þér, hérna er peningabuddan henn- ar; hún bað mig fyrir hana.“ Hann sýndi mér silkipyngju Millu og strauk hana með vinnulegum fingrunum. Eg tók hlýlega í höndina á Ham, og við gengum stundarkorn þegjandi fram og aftur. Þegar minnst vonum varði, opnaði Peggotty eldhús- dyrnar og kallaði á Ham. Ég stóð graíkyrr, en Peggotty gekk til mín og bauð mér að koma inn. Þessi aumingja stúlkukind, sem Ham hafði kallað Framhald i ncesta blaði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.