Æskan

Årgang

Æskan - 01.04.1970, Side 26

Æskan - 01.04.1970, Side 26
Verðlaunaþraut Æskunnar og Klúbbanna ÖRUGGUR AKSTUR 1970 í síðasta blaði lauk verðlaunaþrautinni, sem ÆSKAN, og Klúbbarnir ÖRUGGUR AKSTUR efndu til. Frestur- inn til að svara spurningunum, sem voru 30 í spurn- ingaþrautinni, er til 25. maí næstkomandi. Hér birtum við að nýju allar spurningarnar, því þá hafið þið þær allar í sama blaði. Munið að veitt verða 5 glæsileg verðlaun fyrir rétt svör við öllum spurningunum. I. HLUTI. — JANÚAR 1. Hvorum megin á að ganga á götu, þar sem engin gangstétt er? Svar: A. Hægra megin. B. Vinstra megin. 2. Hvað þýðir rautt, kringlótt umferðar- merki með gulu þverstriki? Svar: A. Allur akstur þannaður. B. Vegavinna. C. Innakstur bannaður. 3. Hvaða aldri þarf umsækjandi að hafa náð til þess að öðlast réttindi til akst- urs? 1) bifreiðar? 2) dráttarvélar? 3) létts bifhjóls? Svar: 1) A. 17 ára B. 16 ára C. 18 ára 2) A. 17 ára B. 16 ára C. 15 ára 3) A. 16 ára B. 15 ára C. 14 ára 4. Hvað mega margir ganga samhliða eftir vegi, þar sem engin gangstétt er? Svar: A. Þrir B. Tveir C. Fjórir 5. Þegar leiðir tveggja ökumanna skerast á gatnamótum, hvor á þá að víkja? Svar: A. Sá, sem hefur hinn á hægri hönd B. Sá, sem hefur hinn á vinstri hönd 6. Hversu margir eru Klúbbarnir ÖRUGG- UR AKSTUR í landinu? Svar: A. Tuttugu og fjórir B. Þrjátiu og einn C. Þrjátíu og þrír 7. Umferðarmerkin, sem kölluð eru boð- merki, eru tvö. Hvað heita þau? Svar: A. Akbrautaskipti og akreinamerki B. Útskot og einstefnumerki C. Akstursstefnumerki og akbrauta- merki 8. Hvað má aka hraðast á reiðhjóli miðað við beztu skilyrði? Svar: A. 15 km B. 25 km C. 20 km 9. Hver er lágmarksaldur barns, sem má vera á reiðhjóli á almannafæri? Svar: A. 6 ára B. 8 ára C. 7 ára 10. Þarft þú að stanza á hjólinu þínu við stöðvunarskyldumerki, ef engin umferð er eftir aðalbrautinni? Svar: A. Já B. Nei II. HLUTI. — FEBRÚAR. 1. Hvað heita hvítar, brotnar línur, serh liggja langsum eftir akbraut? Svar: A. Akstursstefnulínur B. Varúðarlínur C. Stöðvunarlínur 2. Hver er hinn almenni hámarkshraði bifreiða? 1) í þéttbýli 2) Utan þéttbýlis Svar: 1) A. 35 km/klst. B. 45 km/klst. C. 50 km/klst. Svar: 2) A. 60 km/klst. B. 70 km/klst. C. 80 km/klst. 3. Hvað þýðir umferðarmerki, sem er hringlaga, gult að lit, með rauðri rönd? Svar: A. Biðskylda bönnuð B. Allur akstur bannaður C. Bifreiðastöður bannaðar 4. Hvenær tók hægri umferð gildi á ís' landi? Svar: A. 26. maí 1969 B. 27. júní 1968 C. 26. maí 1968 5. Hvernig er biðskyldumerkið? Svar: A. Hringlaga, gult og rautt að lit B. Ferhyrnt, gult og blátt að lit C. Þríhyrnt, gult og rautt að lit 226

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.