Æskan - 01.04.1970, Blaðsíða 41
yróti feáíj urinn kennar ^S^jöldu
Anna G. Bjarnadóttir.
Hún Magga stóra i fjósið fór,
og flýta þurfti hún sér inn,
því Skjalda var borin, og beint oni flór,
féll blessaður kálfurinn.
Hann var bröndóttur allur, svo stinnur og stór,
og hann stiklaði um göngu-pallinn.
Hún mjólkaði Skjöldu, og greyinu gaf
einn gúlsopa og mat að fórnum.
En kálfsa var kalt, og hann angaði af
svo ógnsterkum þef úr flórnum.
Og það var ei furða, því heilmikið haf
var hangandi 'utan á bjórnum.
Og Magga nú þvoði hann mcetavel,
og mýldi við litinn stall.
Hún Magga var sterk og vann eins og vél,
og valdi’ honum litinn pall.
Hún elskaði dýrin og allt þeirra þel,
og þetta var hennar kall.
Nú kálfurinn litli var kominn á bás,
og hvila þurfti um sinn.
Og Magga skammtaði Skjöldu svo glás,
fyrir skínandi frumburðinn.
Og Skjalda baulaði skelfing hás:
„Ég skoða vil kálfinn minn.“
Nú Magga sér flýtti eins og ör,
og æddi hlöðunnar til.
Með ilmandi töðu, og fljót í för,
hún fyllti jötunnar bil.
Og mjólkur-sopi, hann miklar fjör.
Já, Magga, þér gerði skil.
Nú Slijalda var fegin og mjög sœl með,
hve Möggu hönd var sterk.
Hve vel hún var strokin og búið um beð
þar breiddi hún gras-mjúkan serk.
Og Magga var ánœgð og glatt hennar geð.
Hér gerzt hafði „Krafla-verk.“
ANNA G. BJARNADÓTTIR.
Elletu leikskólar \
Nú eru starfræktir í Reykjavík 11 leikskól-
ar, sem rúma um 550 börn. Reykjavíkurborg
hefur byggt alla leikskólana, og greiðir
borgarsjóður hluta af rekstrarkostnaði
þeirra, en Barnavinafélagið Sumargjöf sér
um reksturinn. Á síðastliðnu ári voru liðin
45 ár frá því að Sumargjöf hóf skipulagðan
rekstur dagvistarstofnana í Reykjavík.
241