Æskan

Volume

Æskan - 01.04.1970, Page 41

Æskan - 01.04.1970, Page 41
yróti feáíj urinn kennar ^S^jöldu Anna G. Bjarnadóttir. Hún Magga stóra i fjósið fór, og flýta þurfti hún sér inn, því Skjalda var borin, og beint oni flór, féll blessaður kálfurinn. Hann var bröndóttur allur, svo stinnur og stór, og hann stiklaði um göngu-pallinn. Hún mjólkaði Skjöldu, og greyinu gaf einn gúlsopa og mat að fórnum. En kálfsa var kalt, og hann angaði af svo ógnsterkum þef úr flórnum. Og það var ei furða, því heilmikið haf var hangandi 'utan á bjórnum. Og Magga nú þvoði hann mcetavel, og mýldi við litinn stall. Hún Magga var sterk og vann eins og vél, og valdi’ honum litinn pall. Hún elskaði dýrin og allt þeirra þel, og þetta var hennar kall. Nú kálfurinn litli var kominn á bás, og hvila þurfti um sinn. Og Magga skammtaði Skjöldu svo glás, fyrir skínandi frumburðinn. Og Skjalda baulaði skelfing hás: „Ég skoða vil kálfinn minn.“ Nú Magga sér flýtti eins og ör, og æddi hlöðunnar til. Með ilmandi töðu, og fljót í för, hún fyllti jötunnar bil. Og mjólkur-sopi, hann miklar fjör. Já, Magga, þér gerði skil. Nú Slijalda var fegin og mjög sœl með, hve Möggu hönd var sterk. Hve vel hún var strokin og búið um beð þar breiddi hún gras-mjúkan serk. Og Magga var ánœgð og glatt hennar geð. Hér gerzt hafði „Krafla-verk.“ ANNA G. BJARNADÓTTIR. Elletu leikskólar \ Nú eru starfræktir í Reykjavík 11 leikskól- ar, sem rúma um 550 börn. Reykjavíkurborg hefur byggt alla leikskólana, og greiðir borgarsjóður hluta af rekstrarkostnaði þeirra, en Barnavinafélagið Sumargjöf sér um reksturinn. Á síðastliðnu ári voru liðin 45 ár frá því að Sumargjöf hóf skipulagðan rekstur dagvistarstofnana í Reykjavík. 241

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.