Æskan - 01.04.1970, Page 32
SKÁTAOPNAN
Ritstjórn: HREFNA TYNES
HYAÐ þarfég
JTINS og áður hefur verið getið, er Ijós-
álfa- og ylfingastarf byggt á sömu
lögum, loforði og kjörorði: Gerum okkar
bezta, og aðalinnihald laga og loforðs er
hlýðni og úthald — gefast ekki upp.
En ylfingastarfi á sér aðra sögu, ef :;vo
mætti segja. Það er nú einu sinni svo, að
drengir kjósa heldur athafnasama leiki,
vilja gjarnan íuskast og sýna kraftana, of
svo ber undir. Enda var Manni eða Mowgli,
sem var nú víst rétta nafnið hans, sterkur
og hraustur strákur, sem ólst upp hjá úlf-
unum, og er ylfinganafnið þaðan komið.
Sagan hefst með þvi, að iígrisdýrið, :;em
reyndar hét Shera Khan og var kallað
Skakklappi, var að reyna að læðast að
skógarhöggsmanni, sem hafði búið um sig
með fjölskyldu sinni í skógarrjóðri einu.
En af því að Shera Khan hugsaði bara um
að ná í bráð, þá leit hann ekki niður íyrir
íætur sér, og steig því ofan í glóðheita
að gera til þess
Ylf ingastarf
Akela — við viljum breyta sem bezt.
ösku af báli mannsins. Hann rak þá upp
svo ferlegt öskur, að maðurinn vaknaði,
þreif byssu sína og bjóst til að skjóta
villidýrið, sem æddi inn í skóginn og slapp
með brunasár á löppinni. Drengurinn hafði
vaknað við ósköpin, rölti inn í skóginn,
án þess að nokkur tæki eftir því, rakst á
gamla úlfinn, en var ekkert hræddur, svo
úlfinum þótti hann heldur en ekki karl í
krapinu, tók því drenginn og bar hann til
heimkynna sinna, og svo varð hann einn
af úlfabörnunum — ylfingunum — og var
vissulega alinn upp sem slíkur. Hann lærði
allar listirnar af úlfunum, að klifra, veiða,
læðast, stökkva hljóðlaust, bjarga sér upp
á eigin spýtur. Og þarna kemur þá kjarn-
inn í ylfingastarfinu — bjarga sér, og helzt
geta einnig orðið öðrum að liði líka. —
Foringi ylfinganna er kallaður „AKELA".
Þegar fundur hefst í yliingasveit, sezt
Akela á „Þingsteininn" í miðjum hringnum,
að verða skáti?
ylfingamir raða sér í stóran hring utan
um Akelu og hrópa hátt og snjallt: AKELA-
Við viljum breyta sem bezt — Beb — Beb
— Beb.
En ylfingarnir gera meira en að hrópa-
Þeir verða að læra mörg „próf'1, ef Þel[
eiga að teljast góðir ylfingar. Þar er bæði
„Sárfætlingaprófið", I. stjarna og II. stjarna
og heilmikið af sérprófum. Duglegur ýlf'
ingur kann þvi ýmislegt fyrir sér. Fyts*
verður að læra lög, loforð, kjörorð, kveðjút.
bænina, íslenzka fánann, þekkja á klukkú
o. m. fl. Síðan er margt eins og t. d. a®
bursta skóna sína, leggja saman fötin sfn.
nota símaskrá, þekkja Norðurlandafánana.
heilbrigðisreglur, umferðarreglur, hnúta.
geta flutt skilaboð, gera að smáskeinun1
o. m. fl.
Það, sem ylfingurinn keppir að, cr nð
verða skáti. Ylfingaaldurinn er 9—12 e(a’
og skáti getur hann orðið 11 ára.
232