Æskan - 01.02.1971, Qupperneq 41
ÍSLENZKA
flugsagan
NR. 46
Ljósm.: N. N.
TF-TAB, -VIA
SkráS hér 29. janúar 1947 sem TF-TAB, eign Sambands ís-
enzkra berklasjúklinga, en hún var hingaS keypt til aS vera
aPpdraettisvinningur SÍBS. Um hana var dregiS 1. febrúar, og
u9vélina hrepptu tvö börn, Björn Björgvinsson, 4 ára, og óskírS
sVstir hans á 1. ári. Var hún afhent þeim 3. febrúar.
Fiugvéiin var smíSuS í nóv. 1946 hjá Republic Aviation Corp.,
armingdale, New York. RaSnúmer: 146.
'Í9. febrúar 1947 keypti nýstofnaS félag, FlugfélagiS Vængir hf.,
u9vélina. Þá er skrásetningarmerkjum hennar breytt [ TF-VIA
°9 hún skráS til farþegaflugs.
9- júii 1950 var flugvélinni flogið til Þingvalla og ient þar á
Vatninu. \/ar ætlunin að fljúga þaðan hringflug. Um kvöldið
1 di ÞaS tj|, að flugvélin rakst á blindsker I vatninu. Kom leki
henni og sökk hún þar. Henni var náð uþp og sett I skýli á
eykjavíkurflugvelli, þar sem hún lenti I eldsvoða 18. aprll 1951
°9 ónýttist. Afskráð 6. 3. 1952.
jk ' ' ■
Ljósm.: Sigurjón Einarsson.
REPUBLIC SEABEE RC-3. Hreyflar: Einn 215 ha. Franklin 6A8-
215-B9F. Vænghaf: 11.48 m. Lengd: 8.50 m. Hæð: 3.07 m. Væng-
flötur: 18.20 m^. Farþegafjöldi: 3. Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 960 kg.
Hámarksflugtaksþyngd: 1.430 kg. Arðfarmur: 152 kg. Farflughraði:
170 km/t. Hámarkshraði: 237 km/t. Flugdrægi: 850 km. Hámarks-
flughæð: 3.600 m. 1. flug: 1946.
Ljósm.: N. N.
NR. 47
TF-ISI
DOUGLAS DAKOTA
Skráð hér 15. febrúar 1947 sem TF-ISI, eign Flugfélags ls-
lands. Flugvélin var hingað keypt til farþegaflugs. Hjá Banda-
ríska flughernum hafði hún haft raðnúmerið 42-93473 og hjá
þeim brezka KG629.
Flugvélin var smlðuð 1942 hjá Douglas Alrcraft Company,
Santa Monica, California. Framleiðslunr.: 13389.
29. maí 1947 vildi það hörmulega slys til, er flugvélin var á
leið til Akureyrar, að hún rakst á Hestfjall, efst I svokölluðum
Vogartorfum, við vestanverðan Héðinsfjörð. Skyggni var afar
slæmt, dimm þoka og lágskýjað, og lenti flugvélin á fjallinu I um
50 m hæð. Allir, sem I flugvélinni voru, 25 manns, fórust.
Afskráð 5. 6. 1947.
DOUGLAS C-47A DAKOTA (C-47A-25-DK): Hreyflar: Tveir 1200
ha. Pratt & Whitney R-1830-92. Vænghaf: 28.95 m. Lengd: 19.63
m. Hæð: 5.20 m. Vængflötur: 91.70 m2. Farþegafjöldi: 23. Áhöfn:
3. Tómaþyngd: 7.997 kg. Hámarksflugtaksþyngd: 12.500 kg. Arð-
farmur: 1.593 kg. Farflughraði: 270 km/t. Hámarkshraði: 360
km/t. Flugdrægi: 2.400 km. Flughæð: 6.800 m. 1. flug: 1941.
41