Æskan - 01.02.1975, Page 3
76. ðrg.
2. tbl.
Ritstjóri: GRÍMUR ENGILBERTS, ritstjórn: Laugavegi 56, sími 17336, heimaslml 12042. Framkvæmdastjóri: KRISTJÁN
GUÐMUNDSSON, skrifstofa: Laugavegi 56, heimasími 232J0. Afgreiðslumaður: Sigurður Kárl Jóhannsson, helmasiml
18464. Skrifstofa og afgreiðsla: Laugavegi 56, sími 17336. Árgangur kr. 1.500,00 innanlands. GJalddagl: 1. apríl. í lausa-
sölu kr. 200,00 eintakið. — Utanáskrift: ÆSKAN, pósthólf 14, Reykjavik. Póstgiró 14014. Útgefandi: Stórstúka íslands.
Prentun: Prentsmiðjan ODDI hf.
Febrúar
1975
Eftir lát Edvards Munchs þann 23.
janúar 1944 kom í Ijós, að hann hafði
ánafnað Oslóarborg öll verk sín, skil-
orðslaust. Gjöfin var um það bil 1000
málverk, 4500 teikningar, 15000 graf-
listararkir og 6 höggmyndir, fyrir utan
óhemjustórt bréfasafn, minnisblöð,
bækur, blaðaúrkllppur og önnur skjöl
sem samanlagt varpa skýru Ijósl á líf og
list hins mikla listamanns. Borgarráð
Oslóar ákvað þegar 1946 að byggja
Munchllstasafn, svo almenningur gætl
haft not af gjöfinni, en vegna uppbygg-
ingar eftirstríðsáranna leið langur tími
áður en ákvörðun borgarráðs varð að
veruleika. Það var fyrst árið 1951 sem
efnt var til samkeppnl milll arkitekta um
safnbygginguna, og 1954 urðu úrslit
hennar kunn. Gunnar Fougner og Einar
Myklebust báru sigur af hólmi og var
þeim falið að reisa safnið.
Smíði hússins hófst árið 1960 og var
safnið opnað 29. maí 1963. Ágóðinn af
kvikmyndahúsi Oslóarborgar rann til
byggingarinnar og nægði hann til að
standa straum af öllum kostnaðinum.
Fimmtán hundruð fermetrar af safn-
húsinu eru sýningarsalir, þar með tal-
inn fyrirlestrasalur, sem einnig er not-
aður sem sýningarsalur fyrir stuttar list-
sýningar. Auk þess er í húsinu bókasafn,
skrifstofur, geymslur, stór tæknideild
til myndaviðgerða, Ijósmyndunar, inn-
römmunar o. s. frv., hvíldarherbergi fyrir
gesti, veitingahús, íbúð húsvarðar og
nemendastofa. Þegar safnið var opnað,
voru í sýningardeildinni (sem er á fyrstu
hæð) 250 málverk, 200 graflistararkir
og 50 teikningar, með öðrum orðum að-
eins lítili hiuti safnsins, en fyrirhugað er
að skipta um myndir við og við.
Höfuðmarkmið safnsins er að kynna
málarann Edvard Munch, líf hans og
starf. Leiðsögumaður fylgir gestum um
safnið, og þar eru haldnir fyrirlestrar og
málverkasýningar. Auk þess verður efnt
til sérstakrar dagskrár í fyrirlestrasaln-
um, þar sem kvikmyndir eru sýndar,
tónleikar haldnir o. s. frv., þannig að
safnið verði nokkurs konar menningar-
miðstöð fyrir nærliggjandi héruð. Sal-
urinn hefur verið útbúinn með það fyrir
augum.
Safnið er sjór af fróðleik fyrir list-
Ectvard Munch: sjálfsmynd,
máluð 1905.
Upplag ÆSKUNNAR í dag er 18000 eintök
W£i
1