Æskan - 01.02.1975, Blaðsíða 32
Fimm íslensk börn tóku þátt í hinu
mikla móti sem árlega er haldið í
Kóngsbergi í Noregi og kennt er við
Andrés Önd. Alls voru þátttakendur í
mótinu 448 frá öllum Norðurlöndunum
nema Færeyjum og Finnlandi. í hverri
grein voru keppendur 40—80, en 16—
24 bestu í hverri grein hlutu verðlauna-
pening eða bikar. íslensku börnin stóðu
sig mjög vel og hlutu öll verðlaun.
Katrín Sveinsdóttir og Óskar Hlyns-
son kepptu í flokki 12 ára barna. Katrín
keppti í 12. riðli í 60 m hlaupinu og
varð nr. 2 á 9.0 sek., sem nægði henni
til að komast í milliriðil ásamt 35 telp-
um öðrum. Þar hljóp hún í 6. riðli. Keppi-
nautar hennar höfðu allir náð betri tíma
en hún í undanrásunum, en samt tókst
henni að ná 3ja sæti í hlaupinu og
komast í undanúrslit ásamt 17 öðrum
telpum og hljóp nú á 8.9 sek. Þeim
rWJ
Sonja krónprinsessa er verndari leikanna og sést hér heilsa
keppendum.
18 telpum sem nú voru eftir var raðað
niður í 3 riðla og hljóp Katrín í þeim
síðasta. Aðeins tvær fyrstu úr hverj-
um riðli áttu að hlaupa til úrslita. Voru
möguleikar Katrínar ekki miklir því með
henni í riðlinum voru 2 telpur sem höfðu
hlaupið á 8.5 sek. Enda fór svo að hún
var slegin út, en hún mátti vel una við
árangur sinn.
Óskar Hlynsson keppti bæði í 60 og
600 m hlaupi. Hann varð 3. í undan-
rásum 60 m hlaupsins á 8.9 sek. og
komst þar með áfram í milliriðil. Hann
hljóp síðan ásamt 5 öðrum drengjum
í 6. milliriðli og kom annar í mark á
mjög góðum tíma, 8.6 sek. Þar með
var hann kominn í undanúrslit, en þar
var hann sleginn út eins og Katrín.
Aðeins 10 drengir- náðu betri tíma í