Æskan - 01.02.1975, Blaðsíða 39
i,
Holm forstjóri hafði tekið að sér
stjórn mikils búgarðs í héraðinu Bihar
í indlandi. Hérað þetta var afskekkt.
Forstjórinn var nýfluttur og hafði kom-
ið öilu dóti sínu í röð og reglu. Nú sat
hann á veggsvölum íbúðarhússins og
Jörgen sonur hans hjá honum.
Holm forstjóri kom auga á indversk-
an dreng úti fyrir húsinu. Drengurinn
hneigði sig f kveðjuskyni og brosti.
Hann endurtók kveðjurnar og horfði
UPP til hvítu mannanna á veggsvölunum.
„Hvaða náungi ætli þetta sé?“ sagði
Jörgen. „Hvert mun erindi hans vera?“
.,Það munum við brátt fá vitneskju
um,“ sagði faðir hans og kallaði til
ókunna drengsins: „Komdu upp til okk-
ar."
Drengurinn kom upp á svalirnar og
hneigði sig djúpt.
Forstjórinn mælti: „Hvað er þér á
höndum? Hvers óskar þú?“
Drengurinn svaraði: „Sahib nýfiuttur
hingað. Sahib ekki þekkja háttalag hér.“
Holm svaraði: „Það er alveg rétt. En
ég hef verið víða í Indlandi og býst við
að hár sé ástandið eins og gengur og
gerist."
Drengurinn hristi höfuðið. Hann mælti:
„Jú, hér vera öðruvísi. Hér í Bihar
vera margir þjófar. Öll Dacoit ættin
vera þjófar. Þeir stela allir. Sahib hafa
Þörf fyrir góðan vörð.“
„Jæja,“ sagði Holm. „Þetta er erindið.
Þú vilt fá starf hjá mér sem vörður."
Drengurinn kinkaði kolli og sagði:
„Sahib þurfa vernd, annars allt vera
stolið."
Forstjórinn svaraði kuldalega: „Ég
Þarf enga vernd. Ég hef vinnumenn, er
gaeta þess sem hér er.“
Drengurinn kvaddi feðgana kurteis-
lega og fór sína leið.
Jörgen hló og sagði: „Þetta var skrít-
inn Indverji."
„Já,“ svaraði faðir hans. „En hann
hafði rétt að mæla. Bihar er alræmdur
staður vegna þjófa. Þeir eru taldir lista-
menn í þessari grein. Við skulum gæta
okkar f nótt. Það ætti að vera hægt að
fyrirbyggja, að frá okkur verði stolið."
Áður en forstjórinn gekk til hvílu
éminnti hann menn sína um að hafa á
sér andvara vegna þjófahættu. Svo hátt-
uðu feðgarnir og settu upp flugnanetið.
Þeir voru svefnstyggir og álltu að ekk-
®rt hljóð eða þrusk færf framhjá þeim.
Þegar leið á nóttina vaknaði Jörgen
við afarlítið þrusk. Hann vakti föður sinn,
°g Þeir þrifu skammbyssur sínar.
„Það er einhver úti fyrir,“ hvíslaði
Jörgen. Þeir læddust út og gengu um-
hverfis húsið. Þá heyrðist mjálm og
Jörgen brá ónotalega.
ÞJÓFARNIR
VORU
ENGIR
VIÐVANINGAR
Felumyndir
Smalann vantar 4 kindur.
„Það er þó vonandi ekki tígrisdýr
kom'ð hingað, heim að húsinu;“ sagði
hann.
„Nei,“ svaraði faðir hans. „Þetta var
kattarmjálm. Þeir innfæddu eiga ketti.
Það er ekkert varhugavert hér að ég
best fæ séð í myrkrinu."
Holm hló skyndilega og sagði:
„Þú hefur verið svo ruglaður, að þú
hefur sett upp sólhjálminn um hánótt."
Jörgen þreifaði um höfuð sér. Jú,
þetta var rétt athugað. Náttföt og sól-
hjálmur! En sá búningur. Jörgen tók
hjálminn ofan og hengdi hann á grein,
er hann fann rétt hjá sér, þó að dimmt
væri.
„Þeir geta stofið hjálminum," sagði
hann, „ef þeir vilja. Ég hefði gaman af
að vita, hvort þeir geta fundið hann í
myrkrinu."
Feðgarnir fóru inn í húsið og sváfu
til morguns án þess neitt gerðist.
Þegar þeir vöknuðu um morguninn,
blasti við þeim skringileg sýn.
Úti fyrir húsinu stóðu öll þau hús-
gögn, er í því höfðu verið: Borð, stólar,
skápar, útvarp, grammófónn og ýmis-
legt fleira gat þarna að líta. Á borð-
stofuborðinu lágu úr þeirra og peninga-
veski.
Þetta allt hafði verið flutt út um
nóttina.
Feðgarnir horfðu forviða hvor á ann-
an.
Holm mælti: „Jæja, þjófarnir hafa
heimsótt okkur þrátt fyrir öryggisráð-
stafanirnar."
Þeir rannsökuðu peningaveskin. Ekk-
ert hafði verið tekið af peningunum.
Þá kom indverski drengurinn bros-
andi til þeirra, hneigði sig og rétti
Jörgen sólhjálminn. Hann mælti:
„Heldur sahib ekki, að sahib hafi
þörf fyrir góðan vörð?“
Holm hló og mælti:
„Jú, það er vafalaust. Ég ræð þig hér
með til þess að gegna þessu starfi."
Jörgen stóð og athugaði hjálminn.
Indverski drengurinn sá það og sagði:
„Hjálminn hengdi ungi sahibinn á hand-
legg minn í nótt. Ég var ,,tréð“, sem
stóð hjá ykkur, og greinin var armur
minn. Ég er af Bhatti-ættinni. En frá
þessum degi mun engu verða stolið úr
þessu húsi.“
Og þetta stóð heima.
Að taka Bhatti-dreng fyrir húsvörð
er bersýnilega eina þjófavörnin, sem
fullnægjandi var í Bihar.
37