Æskan

Årgang

Æskan - 01.02.1975, Side 39

Æskan - 01.02.1975, Side 39
i, Holm forstjóri hafði tekið að sér stjórn mikils búgarðs í héraðinu Bihar í indlandi. Hérað þetta var afskekkt. Forstjórinn var nýfluttur og hafði kom- ið öilu dóti sínu í röð og reglu. Nú sat hann á veggsvölum íbúðarhússins og Jörgen sonur hans hjá honum. Holm forstjóri kom auga á indversk- an dreng úti fyrir húsinu. Drengurinn hneigði sig f kveðjuskyni og brosti. Hann endurtók kveðjurnar og horfði UPP til hvítu mannanna á veggsvölunum. „Hvaða náungi ætli þetta sé?“ sagði Jörgen. „Hvert mun erindi hans vera?“ .,Það munum við brátt fá vitneskju um,“ sagði faðir hans og kallaði til ókunna drengsins: „Komdu upp til okk- ar." Drengurinn kom upp á svalirnar og hneigði sig djúpt. Forstjórinn mælti: „Hvað er þér á höndum? Hvers óskar þú?“ Drengurinn svaraði: „Sahib nýfiuttur hingað. Sahib ekki þekkja háttalag hér.“ Holm svaraði: „Það er alveg rétt. En ég hef verið víða í Indlandi og býst við að hár sé ástandið eins og gengur og gerist." Drengurinn hristi höfuðið. Hann mælti: „Jú, hér vera öðruvísi. Hér í Bihar vera margir þjófar. Öll Dacoit ættin vera þjófar. Þeir stela allir. Sahib hafa Þörf fyrir góðan vörð.“ „Jæja,“ sagði Holm. „Þetta er erindið. Þú vilt fá starf hjá mér sem vörður." Drengurinn kinkaði kolli og sagði: „Sahib þurfa vernd, annars allt vera stolið." Forstjórinn svaraði kuldalega: „Ég Þarf enga vernd. Ég hef vinnumenn, er gaeta þess sem hér er.“ Drengurinn kvaddi feðgana kurteis- lega og fór sína leið. Jörgen hló og sagði: „Þetta var skrít- inn Indverji." „Já,“ svaraði faðir hans. „En hann hafði rétt að mæla. Bihar er alræmdur staður vegna þjófa. Þeir eru taldir lista- menn í þessari grein. Við skulum gæta okkar f nótt. Það ætti að vera hægt að fyrirbyggja, að frá okkur verði stolið." Áður en forstjórinn gekk til hvílu éminnti hann menn sína um að hafa á sér andvara vegna þjófahættu. Svo hátt- uðu feðgarnir og settu upp flugnanetið. Þeir voru svefnstyggir og álltu að ekk- ®rt hljóð eða þrusk færf framhjá þeim. Þegar leið á nóttina vaknaði Jörgen við afarlítið þrusk. Hann vakti föður sinn, °g Þeir þrifu skammbyssur sínar. „Það er einhver úti fyrir,“ hvíslaði Jörgen. Þeir læddust út og gengu um- hverfis húsið. Þá heyrðist mjálm og Jörgen brá ónotalega. ÞJÓFARNIR VORU ENGIR VIÐVANINGAR Felumyndir Smalann vantar 4 kindur. „Það er þó vonandi ekki tígrisdýr kom'ð hingað, heim að húsinu;“ sagði hann. „Nei,“ svaraði faðir hans. „Þetta var kattarmjálm. Þeir innfæddu eiga ketti. Það er ekkert varhugavert hér að ég best fæ séð í myrkrinu." Holm hló skyndilega og sagði: „Þú hefur verið svo ruglaður, að þú hefur sett upp sólhjálminn um hánótt." Jörgen þreifaði um höfuð sér. Jú, þetta var rétt athugað. Náttföt og sól- hjálmur! En sá búningur. Jörgen tók hjálminn ofan og hengdi hann á grein, er hann fann rétt hjá sér, þó að dimmt væri. „Þeir geta stofið hjálminum," sagði hann, „ef þeir vilja. Ég hefði gaman af að vita, hvort þeir geta fundið hann í myrkrinu." Feðgarnir fóru inn í húsið og sváfu til morguns án þess neitt gerðist. Þegar þeir vöknuðu um morguninn, blasti við þeim skringileg sýn. Úti fyrir húsinu stóðu öll þau hús- gögn, er í því höfðu verið: Borð, stólar, skápar, útvarp, grammófónn og ýmis- legt fleira gat þarna að líta. Á borð- stofuborðinu lágu úr þeirra og peninga- veski. Þetta allt hafði verið flutt út um nóttina. Feðgarnir horfðu forviða hvor á ann- an. Holm mælti: „Jæja, þjófarnir hafa heimsótt okkur þrátt fyrir öryggisráð- stafanirnar." Þeir rannsökuðu peningaveskin. Ekk- ert hafði verið tekið af peningunum. Þá kom indverski drengurinn bros- andi til þeirra, hneigði sig og rétti Jörgen sólhjálminn. Hann mælti: „Heldur sahib ekki, að sahib hafi þörf fyrir góðan vörð?“ Holm hló og mælti: „Jú, það er vafalaust. Ég ræð þig hér með til þess að gegna þessu starfi." Jörgen stóð og athugaði hjálminn. Indverski drengurinn sá það og sagði: „Hjálminn hengdi ungi sahibinn á hand- legg minn í nótt. Ég var ,,tréð“, sem stóð hjá ykkur, og greinin var armur minn. Ég er af Bhatti-ættinni. En frá þessum degi mun engu verða stolið úr þessu húsi.“ Og þetta stóð heima. Að taka Bhatti-dreng fyrir húsvörð er bersýnilega eina þjófavörnin, sem fullnægjandi var í Bihar. 37

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.