Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1975, Blaðsíða 20

Æskan - 01.02.1975, Blaðsíða 20
1. Sýndu engum manni fyrirlitningu eða afundið viðmót. Kannastu við ágæti og yfirburði annarra. 2. Að beygja sig sjálfur er engin óvirðing, en að vera beygður af öðrum er skömm. 3. Aldinviðirnir hneigja sig niður, þeg- ar þeir bera gnægð ávaxta; skýin fara því lægra, sem þau eru vatns- ríkari, og öðlingar þjóðanna eru því lítillátari, sem þeir eru fleiri mannkostum búnir. 4. Sá, sem hrúgar saman auðæfum, en tímir ekki að njóta þeirra, er vinnudýr annarra og hefur ekki sjálfur annað en stríðið. 5. Skemmsta leið til auðlegðar er eftir braut nægjuseminnar. 6. Hneigðu þig fyrir auðnum, og hann mun brátt heimta, að þú kyssir fót sinn. 7. Farðu eigi gálauslega með efni þín; auðæfin eru mannorð. 8. Það er ekki besti vegurinn að losa sig úr skuldum með því að taka meira lán. Þú verður að vinna þér inn meira og eyða minna en þú gerðir, meðan þú varst að sökkva þér í skuldirnar. 9. Sá, sem gefur ekki gætur að smá- munum, öðlast aldrei þá stærri. 10. Sá er ekki mestur mannvinur, sem gefur peninga, heldur sá, sem ekki tekur peninga aimennings. 11. Gull er gott til þess, sem það er ætlað, en þetra en gull er að lifa sem hugrakkur og þjóðrækinn maður. 12. Deildu auðæfum þínum í þrjá hluta. Geymdu einn til elliáranna, svo að þú líðir ekki skort; notaðu annan til heimilis þíns, og láttu hinn þriðja þangað, sem sorg og neyð eiga heima. aga þessi gerðist í Grikklandi fyrir mörg hundruð árum, þegar þrælahald þótti rétt og sjálfsagt. Fáum þrælum auðnaðist nokkru sinni að hljóta frelsi, því síður heimsfrægð. Þó hlotnaðist litla þrælnum, sem saga þessi hermir frá, hvorttveggja. Hann var í eigu auðugs kaupmanns, sem átti marga þræla. Dag nokkurn ákvað kauþmaðurinn að ferðast til fjarlægrar borgar og selja þar vörur sínar. Hann valdi tuttugu duglegustu þrælana úr hópnum til ferðar- innar og sagði við þá: Þetta ferðalag mun taka marga daga, þess vegna ætla ég að leyfa ykkur að velja sjálfir hvað þið viljið bera af farangrinum. En takið eftir því, að þið getið ekki fengið að skipta um á leiðinni. Hver og einn verður að þera þá byrði, sem hann hefur valið sér. Þarna eru tuttugu pokar, stórir og þungir, gerið svo vel og takið einn, hver ykkar. Þrælarnir keþptust um að ná í minnstu pokana. Nema einn lítill ófríður þræll, sem stóð þolinmóður álengdar og beið meðan hinir völdu. Að síðustu var aðeins einn þoki eftir, og það var auðvitað sá stærsti, næstum eins stór og þrællinn sjálfur. Hann lyfti pokanum á bak sér steinþegjandi. Hinir þrælarnir hlógu og gerðu gys að honum: Hafið þið nokkurn tíma vitað annan eins heimskingja og litla sögumanninn okkar, hrópuðu þeir. — Hann hefur tekið þyngsta pokann og verður að bera hann alla leiðina. Ah-ha-ha. Litli þrællinn stundi undir þyrði sinni, en sagði þó brosandi: — Það verður svo að vera, einhver þurfti hvort sem var að bera þennan poka. En þetta er eins konar galdrapoki, og ef til vill eigið þið eftir að óska þess, að þið hefðuð heldur valið þennan poka þótt hann sé stærstur. Þrælarnir hlógu ennþá meira: — Engin hætta á því, kunningi. Við erum ánægðir með okkar val. Það verður þú, sem iðrast þess að hafa ekki valið þér léttari byrði, áður en ferðin er á enda.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.