Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.02.1975, Qupperneq 27

Æskan - 01.02.1975, Qupperneq 27
tökum um lög og stjórnskipan. Viö þann atburð er miðað upphaf íslenska þjóð- veldisins. ■II Kristnitaka og stofnun Skálholtsstóls. Altaristafla (mósaik) í Skálholtsdóm- kirkju. Höfundur Nína Tryggvadóttir (1913— 1968). Gissur hvíti bjó í Skálholti. Afi hans var Ketilbjörn landnámsmaður á Mos- felli. Gissur gekkst manna mest fyrir því, að kristni var lögtekin á Þingvelli árið 1000. Hann reisti fyrstu kirkjuna i Skálholti. Hann fylgdi syni sínum, fs- leifi, utan og setti hann til náms á Þýska- landi. ísleifur gerðist prestur í Skál- holti og setti þar skóla. Árið 1056 varð hann biskup yfir Islandi. Hans sonur, Gissur, varð biskup eftir hann og gaf kirkjunni föðurleifðina, Skálholt, til bisk- upsseturs. Þar var síðan höfuðstaður kirkju og þjóðar (ásamt Hólum frá 1106) fram undir lok 18. aldar. Endurreisn Skálholts hófst um miðja þessa öld. Nýja kirkjan þar var vígð 1963. Aitarismyndin í henni eftir Nínu Tryggvadóttur (dönsk gjöf) var sett upp 1966. Hún táknar Krist konung, sem Is- lendingar gengu á hönd árið 1000. IV Ritöld. Sæmundur á selnum (höggmynd, brons) Höfundur Ásmundur Sveinsson (f. 1893). Sæmundur prestur Sigfússon fróði er talinn fyrsti íslenski rithöfundurinn. Hann nam fyrstur norrænna manna lærdóm sinn suður á Frakklandi. Hann var goð- orðsmaður og setti skóla á föðurleifð sinni, Odda á Rangárvöllum. Sæmund- ur tók saman Noregskonungatal, skrá um stjórnarár Noregskonunga á 10. og 11. öld ásamt fáorðum æviatriðum. Sæ- mundur telst hafa samið á latínu en bók hans er glötuð. Síðari höfundar felldu efni hennar inn í rit sín. Sagan segir, að Sæmundur hafi beð- ið Kölska að flytja sig til Islands frá Frakklandi og sagt, að hann mætti eiga sig, ef hann kæmi sér þangað án þess að væta kjóllafið. Gekk Kölski að þessu, brá sér í selslíki og synti með Sæmund á bakinu til Islands. Sæmundur las i Saltaranum alla leiðina, og er þeir komu undir land, laust hann selinn í hausinn með honum, svo að hann sökk, en Sæ- mundur fór á kaf og synti til lands. Þetta voru fyrstu 4 merkin af 11, sem gefin voru út í tilefni 1100 ára afmælis (slandsbyggðar. Þá koma næst út tvö svokölluð Evrópumerki. Þau komu út síðast í apríl (29. 4.) og eru að verð- gildi 13 og 20 kr. Á öðru þeirra, þ. e. 13 kr. merkinu, er mynd af tréskurðar- mynd frá 17. öld, en á 20 kr. merkinu er mynd af höggmynd Ásmundar Sveins- sonar, sem hann nefnir Gegnum hljóð- múrinn. Nú er það svo, að hver Evrópuþjóð, sem gefur út Evrópufrímerki, getur ráð- ið því sjálf, hvaða mynd eða „mótiv" er á frímerkjunum. Næst í röðinni eru svo aftur 1100 ára afmælismerkin, en þrjú þeirra komu út 11. júní 1974. Verðgildi: 17, 25 og 100 kr. V. Sturlungaöldin Teikning eftir Þorvald Skúlason (f. 1906) Forn þjóðfélagsskipun íslendinga tók að riðlast á 12. öld. Miklar eignir söfn- uðust til fárra ætta, meðal annars vegna þess að bændur áttu kirkjur þær sem þeir byggðu og tóku raunverulega í sinn hiut helming tiundarinnar. Áður var dreifing valds tryggð með skiptingu landsins í goðorð, en á 13. öld voru öll goðorðin komin í hendur fárra höfðingja sem börðust um völdin og leituðu sumir stuðnings hjá Noregskonungum. Hákon gamii Hákonarson, konungur Noregs 1217—1263, gerði suma íslenska höfð- ingja að hirðmönnum sínum, sendi þá sem hann treysti með erindum sínum til (slands, en hélt öðrum eftir í Noregi, en af valdabaráttu höfðingja og afskipt- um konungs leiddi meiri ófrið á 13. öld en verið hefur á landinu í annan tíma. Veturinn 1238—1239 var Snorri Sturluson með Skúla hertoga Bárðar- syni í Niðarósi. Um vorið bjó hann skip iTrni"i : 874 ÍSLAND 1974 1 I A álll l< 25

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.