Æskan - 01.02.1975, Síða 31
Höll Frontenacs borgarstjóra.
Charter-brú yfir St. LawrencefljótiS.
St. Lawrencefljót er eitt af lengstu og merkustu fljótum
NorSur-Ameríku.
Það kemur upp nálægt uppsprettum Mississippifljóts og
heitir í fyrstu St. Louisfljót, en eftir aS þaS hefur runnið
gegnum Ontariovatn og fjögur önnur vötn, heitir það fyrst
St. Lawrencefljót.
Jacques Charter varð fyrstur til að rannsaka það, en
hann var franskur landkönnuður. Ferðaðist hann um fljótið
og svæðin þar í kring árið 1536.
Charter komst þangað, sem nú er borgin Montreal; þar
er brú yfir fljótið, sem ber nafn hans.
Stórátak var gert til þess að gera suma hluta St. Lawr-
encefljóts skipgenga og bætt var við skurðum og vatnasvæði
fljótsins lagað árið 1959. Síðan geta stór skip siglt til
Montreal, og sá vegur er 1587 km og er þetta kallað
vatnavegur St. Lawrencefljóts.
Eftir þetta fellur áin um sléttlendi alla leið til Quebec,
en þangað komast ekki stór skip.
Áin verður ísi lögð á veturna.
Maður að nafni Frontenac var borgarstjóri í Quebec
frá 1672 og til dauðadags 1698. Hann lét reisa mörg stór-
hýsi í Quebec, og höll hans stendur þar enn.
Margar þverár falla í St. Lawrencefljót, og er mikil lax-
veiði í mörgum þeirra.
St. Lawrenceflói er mjög fiskisæll; þar veiðist bæði þorsk-
ur og síld og fleiri nytjafiskar.
Margar brýr eru á fljótinu nálægt Quebec bæði gamlar
og nýjar.
29