Æskan - 01.02.1975, Síða 33
Sigurvegarar 1973. Lengst til hægri í efstu röS er Ásta B.
Gunnlaugsdóttir sem unniS hefur 3 gullverSlaun á leikunum.
hlaupinu. Óskar stó5 sig ennþá betur
í 600 m hlaupinu. Keppendur voru alls
47 og var keppt í 7 riðlum. Óskar hljóp
frábærlega vel og náði 3ja besta tím-
anum, 1:38.4 mín.
Þau Katrín og Óskar eru bæði úr
Reykjavík og keppa fyrir Gllmufélagið
Ármann.
í flokki 11 ára barna kepptu Hrefna
Magnúsdóttir og tvíburarnir Svanur og
Þröstur Ingvarssynir, öll frá Selfossi.
Hrefna stóð sig best af íslensku börn-
unum. Hún varð nr. 2 í hástökki, stökk
1.30 m og nr. 3 I 60 m hlaupi á 8.8 sek
eftir að hafa sigrað I sínum riðli I und-
anrásum á 8.7 sek., I milliriðlum á 8.9
sek. og I undanúrslitum á 9.0 sek.
Svanur og Þröstur kepptu I 60 m
hlaupi og 600 m hlaupi. Svanur sigraði
I 5. riðli I undanrásum 60 m hlaupsins
á 9.0 sek., en Þröstur varð nr. 2 I 12.
riðli á 8.9 sek. Þeir urðu svo nr. 2 I
sínum riðlum I milliriðlum og bættu ár-
angur sinn, Svanur hljóp á 8.9 sek. en
Þröstur á 8.8 sek. Þar með voru þeir
komnir í undanúrslit ásamt 16 öðrum
drengjum. Þeir stóðu sig enn vel í sín-
um riðlum I undanúrslitunum, Svanur
varð þriðji I 2. riðli á 8.8 sek., en Þröst-
ur fjórði I 3. riðli á 8.9 sek., og náðu
aðeins 6 drengir betri tíma en þeir af
þeim 54, sem tóku þátt I hlaupinu.
í 600 m hlaupinu gekk ekki eins vel.
Af 50 keppendum varð Svanur nr. 21
á 1:49.9 mín. en Þröstur nr. 24 á 1:51.1
mín.
Hins og sjá má hér að framan var
þátttaka íslensku barnanna til mikils
sóma og ferðin I alla staði mjög ánægju-
leg.
Öruggt má telja að 4 börnum frá
íslandi verði boðið að keppa á næstu
Andrésar Andar-leikum sem haldnir
verða í Kóngsbergi f byrjun september
n. k.
Þátttakendur verða valdir f byrjun
ágúst. Ég þykist þess fullviss að fjöldi
barna hafi áhuga fyrir því að komast í
næstu ferð. Til þess þarf að æfa vel í
31