Æskan - 01.02.1975, Blaðsíða 34
— Nei, nei, hrópar Pétur iitli og grúf-
ir sig í pils móður sinnar. Það er úti-
lokað að hann heilsi kurteislega Jónu
frænku, sem nýkomin er í heimsókn.
Pétur er tæplega tveggja ára, og ein-
mitt á þeim aldri hafa mörg börn til-
hneigingu til að taka neikvæða afstöðu
til allra, sem þau umgangast ekki á
hverjum degi. Þetta er fyrirbrigði sem
gengur yfir og hægt er að kalla mömmu-
veiki.
Besta ráðið gegn þessu er að láta
sem ekkert sé og leyfa barninu að átta
sig á gestunum í ró og næði. Því miður
eyðileggja mæður oft af hugsunarleysi
eða þekkingarleysi þá öryggistilfinningu
hjá barninu, sem er besta vörn þess
gegn mikilli mömmuveiki.
Það gerist þannig, að barninu er hót-
að eins og með þessu: — Ég fer frá þér,
ef þú hlýðir ekki, og við skiptum á þér
og öðrum krakka o. s. frv. Það er nefni-
lega freistandi að nota svona hótanir í
augnablikinu gagnvart lítilli manneskju,
sem tekur allt bókstaflega. En í staðinn
á maður á hættu að koma af stað
hræðslu og öryggisleysi, sem mjög erfitt
er að vinna bug á seinna meir.
MÖMMUBÖRN
Og þegar svo barnið er orðið þannig,
af rangri meðhöndlun og óheppilegum
kringumstæðum, að það er óhamingju-
samt og óánægt í hvert skipti sem
móðir þess fer út, grípur mörg móðirin
til rangra ráðstafana.
Til þess að sleppa við uppistand lof-
ar hún því að vera heima, en strax og
sá sem á að gæta barnsins hefur leitt
athygli þess að einhverju öðru, læðist
hún samt í burtu.
Það liggur I augum uþpi að þessi
framkoma gerir barnið enn óöruggara
en það var. Því þegar ekki er einu sinni
hægt að treysta því að mamma verði
kyrr, þegar hún hefur sagt það, hlýtur
maður alltaf að vera á verði gagnvart
því að hún laumist ekki í burtu.
Það er betra að ganga hreint til verks
frá byrjun, ef þannig stendur á. Það
borgar sig yfirleitt alltaf fyrir báða að-
ila að uppalandinn taki nauðsynlegustu
óþægindi á sig undanfærslulaust. Ef
ekki er litið á barnauppeldi með mikilli
yfirsýn er hægt að yfirvinna erfiðleikana
I augnablikinu, en áhrifin er kannski ekki
hægt að yfirvinna fyrr en eftir ár og dag.
Kjörorðið er: ÆSKAN FYRIR ÆSKUNA
vetur og sumar þær greinar sem keppt
er í og ná árangri sem frambærilegur
er á leikunum.
Til þess að þið getið áttað ykkur á
hvaða árangri þið þurfið að ná til þess
að hafa möguleika, læt ég fylgja hér
á eftir töflu yfir árangur í öllum ,grein-
um í Kóngsbergi 1974.
11 ára 12 ára
telpur drengir telpur drengir
60 m hlaup:
Sigurvegari
nr. 16
600 m hl.:
Sigurvegari
nr. 16
Hástökk:
Sigurvegari
nr. 16
Langstökk:
Sigurvegari
nr. 16
Kúluvarp:
Sigurvegari
nr. 16
8.6 3.4
9.1 9.0
1:48.3 1:42.3
1:56.0 1:49.2
1.38 1.46
1.15 1.35
4.58 4.71
3.95 4.15
9.33
6.71
8.2 8.2
8.9 8.6
1:43.0 1:36.5
1:51.5 1:44.7
1.46 1.51
1.20 1.25
4.99 4.95
4.19 4.38
9.38 14.68
7.18 8.71
32