Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.02.1975, Qupperneq 35

Æskan - 01.02.1975, Qupperneq 35
Orðsending Afgreiðsla Æskunnar sendir ykkur ölium, kaupendum og •esendum blaðsins, sínar bestu nýársóskir. Afgreiðslan Þakkar gott samstarf liðins árs, ánægjulegan og árangurs- ríkan stuðning hinna mörgu einstaklinga og útsölumanna um land allt. Afgreiðslan þakkar öll bréf sem henni hafa Þorist, öll skemmtileg og hugmyndarík; í þeim er að finpa einlægan vilja til starfs og framkvæmda. Væri vissulega gaman áð geta svarað þeim öllum; hverju fyrir sig, en þvf miöur er það ógerningur. Verð ég því að þakka ykkur öll- um í einu lagi fyrir ykkar ágæta stuðning við blaðið. Á liðnu ári bættust við margir nýir kaupendur, og seinasta mánuð ársins urðu þeir 370 sem gerðust áskrifendur. Þrátt fyrir þennan góða árangur er takmarkinu ekki náð, en við vonum að þið látið ekki þar við sitja. Við heitum því á dugnað ykkar enn þá, ungu vinir og samhérjar, að láta ekki staðar numið, heldur halda áfram að settu marki með auknum krafti á hinu nýbyrjaða ári. Fjölgum áskrifendum Æskunnar í 20.000. Allmargir kaupendur fengu ekki jólablaðið að þessu sinni vegna þess að þeir hafa ekki ennþá sent áskriftar- 9jaldið, sem féll í gjalddaga 1. apríl síðastliðinn. Það eru vinsamleg tilmæli okkar til foreldra barnanna, að þeir sendi greiðslu fyrir blaðið á réttum gjalddaga, svo að kom- ist verði hjá slíkum aðgerðum, sem óneitanlega koma harðast niður á blessuðum tiörnunum. Vanskil á blaðinu koma nokkuð oft fyrir, en þau stafa fyrst og fremst af því, að gleymst hefur að tilkynna bústaðaskipti. Gleymið ekki eð tilkynna, ef þið skiptið um heimilisfang. Skrifið nöfn ykkar og heimilisföng greinilega, ásamt hrepps- og sýslunafni. Margir bæir bera sama nafn, og það veldur miklum óþægindum, ef hréppar og sýslur eru ekki hlgreindar jafnframt bæjarnafni. Nýir áskrifendur eiga enn kost á því að fá einn eldri árgang í kaupbæti meðan upplag endist. Að lokum: KOSTAKJÖR ÆSKUNNAR á bókum, sem kynnt voru í Sókaskrá Æskunnar I október s.l., standa óbreytt áfram, ef Y©gna gífurlegra verðhækkana á síðast- !iðnu ári á prentun, pappír, póstgjöldum fl. verður ekki komist hjá að hækka yfirstandandi árgang 1975, og verð hans ekki verða neinar verðlagsbreytingar hjá þeim, sem við byggjum þessi viðskipti á. Hygginn maður geymir ekki til morguns það sem hann getur lokið við í dag, svo ef ein- hverjar bækur eru í bókaskránni, sem þið hafið áhuga á að eignast, þá ættuð þið að tryggja ykkur þær sem fyrst. Ef einhver útsölumaður eða einstaklingur skyldi eiga eitthvað af eldri blöðum blaðsins í'fórum sínum, þá væri okkur kært að fá þau endursend. Tilkynnið vanskil á blað- inu fljótlega, en dragið það ekki lengi. Látið strax vita, ef þið skiptið um bústað. Munið að greiða blaðið á réttum gjalddaga, svo að við losnum að mestu við þann kostnað og fyrirhöfn, sem leiðir af að senda gíróseðla. Sendið pen- ingana í gíró eða með póstávísun, því það er ódýrast fyrir ykkur. Sendið alls ekki peninga í venjulegum bréfum. Þjóðhátíðarár er liðið, við vorum glaðir í landi okkar, eftir ellefu alda búsetu í okkar ástkæra landi. Svo skyndi- lega breyttist gleði okkar í sorg vegna náttúruhamfaranna í Neskaupstað. Við biðjum Drottin algóðan að hugga þá, sem um sárt eiga að binda. Vort traust er allt á einum þér, vor ástarfaðir mildi. Þín náð og miskunn eilíf er, það alla hugga skyldi. Þú ert vor stoð og einkahlíf, svo engu þurfum kvíða, vor huggun, athvarf, Ijós og líf. Æ, Ijúft er því að stríða. í hverju, sem að höndum ber, og hvað sem bágt oss mætir, þin hjálp oss nálæg ætíð er, og allar raunir bætir. Sb. 1871 — P. Jónsson. Kær kveðja, SIGURÐUR K. JÓHANNSSON afgreiðslumaður. hefur verið ákveðið kr. 1500. Gjalddagi blaðsins er 1. apríl næstkomandi. Greiðið blaðið strax, því undir skilvísri greiðslu ykkar er framtíð blaðsins komin. 33

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.