Æskan - 01.02.1975, Síða 37
Að þessu sinni viljum við í flugþættinum
Vekja athygli á því, að nú er komið út
3- bindi af flugsögu (slands eftir Arngrim
Sigurðsson.
* I þessu bindi er rakin saga flugmálanna
^rin 1931—1936. I islenskum flugmálum
Þetta tímabil gerðist það heist að Flugfélag
lsiands hætti störfum á árinu 1931, og má
Þá segja að eftir það hafi orðið hlé á
þessum vettvangi til ársins 1936. Þó var
falsvert um merkilegar fiugheimsóknir á
Þessu árabili og má I því sambandi nefna
fiu9kappana Lindbergh og Balbó. Sá siðar-
nefndi kom hingað með heila flugsveit,
°9 vakti flug þetta heimsathygli. Af öllum
♦—
Hver af indíánunum hefur snarað
nautið?
annAlar
fSLENSKRA FLUGMÁLA
1928*1931
AANCtfMUS fllOUROSSON
■ÖKAUTOAFA askunnar
þessum atburðum er fjöldi mynda sem ekki
hafa birst áður á prenti. Að sjálfsögðu er
sægur myndá af íslenskri flugstarfsemi og
greint frá helstu mönnum hennar, svo sem
Agnari Kofoed-Hansen flugmálastjóra.
I texta er sagt frá ýmsu sem ekki hefur
verið á alira vitorði fyrr en nú með út-
komu þessarar bókar. Þetta bindi, eins og
tvö þau fyrri, er þvi nauðsynlegt öllum,
sem áhuga hafa á flugmálum og sögu
landsins yfirleit. Eins og 1. og 2. bindið
er bókin ( stóru broti, prentuð á besta
myndapappír með offset-aðferð, sem stór-
eykur gæði allra mynda, en eins og að
likum lætur voru frummyndirnar misjafnar.
Um leið og við hvetjum alla til að eignast
þetta 3. bindi flugsögunnar, viljum vlð
benda á að 1. bindið er að verða uppselt og
mikið er gengið á upplag 2. bindis. Það
fer þvi hver að verða siðastur að eignast
allt verkið sem út hefur komið fram að
þessu. Vonast er til að framhald verði á,
en óráðið er enn hvenær það verður.
Sem áður fá kaupendur Æskunnar öll
bindin með bestu kjörum (sbr. bókalista).
En munið, að sveltur sitjandi kráka, en
fljúgandi fær.
♦
35