Æskan

Årgang

Æskan - 01.02.1975, Side 40

Æskan - 01.02.1975, Side 40
É Hestarnir sjö (Norsk myndasaga, lauslega þýdd.) 1. í jaSri skógarins bjó fátækur skógarhöggsmaður ásamt konu sinni og þremur sonum. Þau voru svo fátæk, að þau höfðu rétt til hnífs og skeiðar og urðu að neita sér um flest lífsins gæði. Eins og áður segir voru synirnir þrír, en sá yngsti þeirra var nú hafður dálítið útundan og látinn sofa frammi i öskustónni, enda kallaður Ösku-Lalli. — Dag nokkurn sagði elsti strákurinn við föður sinn: ,,Nú ætla ég að fara út í heiminn og vinna mér inn mikla peninga." Hann fékk leyfi til þess og lagði svo ótrauður af stað. 2. Hann gekk og gekk daginn langan, allt þar til hann kom að konungshöilinni, en þá var líka farið að kvölda. Kóngur stóð úti á hallartröppunum, þegar strák bar að garði. „Hvað vilt þú hingað?“ spurði hann strák. ,,Ég er að leita mér að vinnu," svaraði pilturinn. ,,Ég get látið þig fá atvinnu," svaraði kóngur. ,,Þú átt að gæta folanna minna, sem eru sjö að tölu. Þú átt að fylgja þeim eftir og svo áttu að geta sagt mér, hvað þeir eta og drekka, þegar þú kemur með þá að kvöldi dags hingað heim til hallar minnar. Ef þú getur þetta, þó ekki sé nema í eitt skipti, skaltu fá dóttur mína fyrir konu og hálft ríkið að auki.“ 3. Já, þetta fannst stráknum að mundi verða létt yerk og löður- mannlegt. Hugsaði hann með sér, að auðvelt mundi verða að fá hálft kóngsríkið fyrir aðeins eins dags vinnu. Snemma næsta morgun hleypti hirðmeistari konungs hestunum út. Jú, það var rétt, þeir voru sjö folarnir, sem hlupu þarna af stað. Strákur hljóp einnig allt hvað hann gat, en þegar fram á daginn kom, var hann orðinn mjög þreyttur. 4. i þessum svifum kom hann að stórum kletti og upp við hann sat kerling ein, grettin og grá. Hún var að tvinna band á hala- snældu. Þegar hún sá piltinn hiaupa rennsveittan á eftir folunum, kallaði hún til hans: „Komdu hingað, sonur sæll, sestu niður hér hjá mér og hvíldu þig, meðan óg leita þér lúsa.“ Þetta fannst strák heillaráð. Hann settist því niður í grasið hjá kerlingu. 38

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.