Æskan - 01.02.1975, Síða 43
11- O-jamm, ojæja. Illur á sér ills von. Allt í einu sjá strákaillfyglin, hvar þeir
Láki og Gvendur rísa eins og draugar sinn upp úr hvorri gröf og halda auö-
vitað, að þeir séu afturgengnir. — 12. Þeir bíða ekki boðanna, en láta fætur
forða sér og skilja eftir allar kræsingarnar. „Ætli við verðum ekki að fá þetta
að láni, fyrst svona fór með kökubitann," segir Gvendur. „Jú, sá hlær best,
s®m étur mest,“ svarar Láki.
Æska, vertu sjálfri þér trú
Hafnaðu bæði áfengi ogtóbaki
. 7- En Láki brunar niður krítarklettana og kemur niður í fjöruna rétt hjá sjálfu
námuopinu. „Enginn veit, hvað átt hefur, fyrr en misst hefur,“ segir hann við
sjólfan sig. „Bara hann sé nú ekki kominn í klessu." — 8. Og svo hleypur
Láki lati alveg ólatur inn eftir námugöngunum, æpandi og hljóðandi á gamla
vin sinn og félaga frá skútuárunum, en enginn svarar honum nema dimmt og
draugalegt bergmálið.
9- En loksins reka þeir saman snjáldrin, karlarnir, og bregður heldur en
ekki í brún. „Æ, ekki átti ég von á að mæta afturgöngu!" æpir Láki. „Ó, draug-
ur, draugur!" hljóðar Gvendur. — 10. Þeir taka því báðir til fótanna, hvor í sína
áttina og hlaupa inn í sinn rangalann hvor. Við skulum á meðan bregða okkur
yfir á næstu mynd og sjá, hvað þar gerist.
Sigga litla horfði á mömmu sfna vera
að strá hveiti á kolann.
— Mamma, hvers vegna þarf að
púðra kolann?
— Þér vilduð nú ekkl vera svo góður
að aka yfir þessa þorska fyrir mlg. —
Ég man eftir því núna að ég áttl að
X kaupa rauðsprettu.
— Hefur ákærði áður komlst und-
ir mannahendur?,
— Já, fyrir 10 árum fókk ég sekt
fyrir að fara I bað, þar sem það var
bannað.
— Nú — og síðan?
— Síðan hef ég ekkl farið í bað.
41