Æskan - 01.01.1979, Qupperneq 35
fógeta sem bústaður landfó-
geta.
Arkitekt hússins var dansk-
ur maður Nicolai Eigtved.
Hann var þekktur arkitekt á
sínum tima og meðal verka
hans má nefna konungshöll-
ina Amalienborg.
Nú er unnið að breytingum
á húsinu þar sem það er fært
nær sínu upprunalega útliti.
Bygging Viðeyjarstofu brýt-
ur blað í sögu húsagerðar á
Islandi. Hún er fyrsta stein-
húsið og jafnframt því lang
stærsta íveruhús þeirra daga.
Af þessum ástæðum má telja
Viðeyjarstofu meðal merkis-
bygginga, sé miðað við að-
stæður þess tíma.
húsavíkurkirkia
Húsavíkurkirkja var byggð
árið 1906. Kirkjuna teiknaði
Rögnvaldur Ólafsson, ,en
hann var fyrsti íslenski húsa-
meistarinn, og er kirkjan hans
fyrsta verk sem reist var.
Húsavíkurkirkja er svoköll-
uð krosskirkja, byggð úr
timbri. Hún er ein af merkis-
byggingum þjóðarinnar á
timburhúsaöld, sem stendur
frá því skömmu fyrir aldamót-
in 1800 til 1918, að taliðer.
Rúmum mánuði síðar er
svo 50 ára afmæli innan-
iandsflugsins og láta frímerk-
in Það ekki fram hjá sér fara.
Tvö merki sáu dagsins Ijós á
afmælisdaginn, sem talinn
var vera 21. júní 1978.
Þessi útgáfa var hin 178. í
röðinni, merkin voru tvö, 60
kr. og 100 kr.
Áárinu 1928 var brotið blað
í sögu samgöngumála á ís-
landi. Þá var stofnað Flugfé-
lag íslands, hið annað í röð-
inni og reglubundið áætlun-
arflug með farþega og póst
frá Reykjavík til nokkurra
stærstu staða á landinu hófst.
Leigðar voru tvær sjóflugvél-
ar frá Deutsche Lufthansa og
flugu þeim þýskir flugmenn
,en fyrstu íslensku flugmenn-
irnir tóku svo við árin 1930 og
1931. Það ár varð hið síðasta í
þessari annarri tilraun til að
koma á flugsamgöngum á ís-
landi. Samningur var gerður
milli Flugfélags íslands og
Póststjórnarinnar um póst-
flutninga og var samningur-
inn birtur í maí 1928. Sam-
kvæmt honum skyldi Flugfé-
lagið fljúga með flugpóst-
sendingar allt að 50 kg fimm
daga í viku. Hófust þessar
ferðir 4. júní sama ár, og var
þá farið til Akureyrar með
viðkomu á ísafirði og Siglu-
firði. Fáum dögum síðar hóf-
ust ferðir til Stykkishólms og
Vestmannaeyja. Fyrir send-
ingar, sem sendar voru loft-
leiðis, var tekið auk venju-
legra burðargjalda, viðbótar-
gjald, sem nam 10 aurum fyrir
almennt bréf að 20 g. Sérstakt
flugfrímerki var gefið út 1928
vegna viðbótargjaldsins. Var
það með mynd af flugvéi, yf-
irprentað á áður útkomið 10
aura frímerki. Ári síðar kom
annað flugfrímerki út meö
mynd af flugvél á 50 aura frí-
merki.
Þau frímerki, sem póst- og
símamálastofnunin gefur út
að þessu sinni, sýna annars
vegar nýjustu gerð þeirrar
flugvélar, sem nú er notuð til
flutninga innanlands (Fokker
Friendship), og hins vegar
flugvélar af þeirri gerð (Junk-
ers), sem notaðar voru fyrir
hálfri öld, og á því merki er
einnig mynd af dr. Alexander
Jóhannessyni. Hann var for-
göngumaður að stofnun
Flugfélags Islands 1. maí
1928, formaður þess og
framkvæmdastjóri til 1931 og
fyrir hans tilstilli voru hafnar á
íslandi reglubundnar póst- og
farþegaflugferðir. Dr. Alex-
ander fékk snemma mikinn
áhuga á flugmálum og ritaði
mikið um þau mál. Hann
fæddist 15. júlí 1888, stundaði
háskólanám í málfræði og
þýskum bókmenntum við há-
skólana í Kaupmannahöfn og
Halle í Þýskalandi, þar sem
hann varði doktorsritgerð
sína 1915.
Dr. Alexander varð pró-
fessor við Háskóla l’slands
1930 og rektor hans 1932—
35, 1939-42 og 1948-54.
Hann var m. a. formaður
byggingarnefndar Háskólans
um lengri tíma og beitti sér
mjög fyrir þeim málum í þágu
þeirrar stofnunar. Hann and-
aðist 7. júní 1965.
Framhald.
RAKSTURINN
Fyrst eru það skeggbrodd-
arnir, sem hafa vaxið á einni
nóttu í lífi Kojaks, Telly
Savalas.
Svo er það skallinn ... hann
á að vera fægður, hreinn og
hárlaus.
Loks fær hann sér vatnsglas
... og nýr dagur tekur við.
29