Æskan - 01.04.1981, Qupperneq 3
Ritstjóri: GRÍMUR ENGILBERTS, ritstjórn og skrifstofa: Laugavegi 56, sími 10248, heimasími 12042. Framkvæmdastjóri: KRISTJÁN
GUÐMUNDSSON, heimasími 23230. Afgreiöslumaöur: SIGURÐUR KÁRI JÓHANNSSON, heimasími 18464. Afgreiösla: Laugavegi 56,
sími 17336. — Árgangurinn kostar kr. 150,00. Gjalddagi er 1. apríl. — Utanáskrift: Æskan, pósthólf 14, Reykjavík. Póstgíró: 14014.
Útgefandi Stórstúka islands. — Prentsmiöjan Oddi hf.
Apríl
1981
LUDWIG
van BEETHOVEN
< Ý
&
H
V
H
^ J
•ví
I
V-
4/
H
H
w
3
icJ
V
„Listin sameinar alheiminn! Mér finnst ómögulegt að
yfirgefa heiminn, fyrr en ég hefi gengið frá öllu, sem
mér finnst ég vera maður til að gera. — Forsjón! Þú
sérð minn innri mann, þú þekkir hann, þú veist að ást
mannanna og hneigð til hins góða býr þar.“
LUDWIG v. BEETHOVEN! Nægju-
semi og einfaldleiki einkenndi líf
hans; hann var einmana hugsuður,
sem var allur í hinu skapandi starfi
sínu. Verk hans Ijóma frá sér andans
tign, sem flytur boðskap öllum þeim,
sem hafa skilning á tónlist og fegurð.
Hinir ytri atburðir höfðu ekki jafn mikil
áhrif á lund hans og andans verk eins
og örlög hans sjálfs og það, sem hann
fékkst viö. Þegar heyrnarleysi hans
ágerðist og sjúkdómarnir mæddu á
honum, voru umbrot í sál hins þung-
lynda manns, og kröfðust framrásar.
En þó Napóleon færi með her inn í
ættjörð hans varð enginn brimsjór í
sál Beethovens fyrir því. Þriðja hljóm-
kviðan hans, sem hann samdi 33 ára,
átti uþþrunalega að tileinkast Napo-
leon Bonaparte. En þegar hann lét
gera sig að keisara varð Beethoven
æfur við; ,,Er hann þá ekki nema al-
gengur maður heldur? Nú gerist hann
eflaust harðstjóri, sem fótumtreður öll
mannréttindi." Síðan þaut hann að
skrifborðinu sínu, þreif tónsmíðina og
ÆSKAN er ódýrasta barna- og unglingablað landsins.
1