Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.04.1981, Qupperneq 32

Æskan - 01.04.1981, Qupperneq 32
RAUÐI KROSS ÍSLANDS — Ég kynntist Rauöa krossin- um fyrst eins og svo margir aörir sem merkjasöludrengur og félagi í unglióadeild. — Ég veit aö mjög fáir af lesendum Æskunnar vita aö æskulýðsstörf voru mikilvægur þáttur í starfi Rauóa kross l'slands lengi. Félagiö gaf út hið skemmti- legasta blaö, sem hét Unga ísland og æskulýósdeildir voru starfandi víóa um land. Hvers vegna starfió hætti vissi ég aldrei, þaö hreint gufaöi upp og við sem vorum meö vissum ekki hvaö af því varö. — Núna heföi ég helst ætlað aö verkefnin hafi verió oröin gamaldags og því ekki laðað unga fólkið að. Líka gæti verið að forystumennirnir hafi hætt störf- um og engir veriö til aö taka viö. Þá var félagsskapurinn fátækur og hafói ekki ráö á aö ráöa ein- hvern til aó halda starfinu viö og byggja þaó upp. — Síóast voru æskulýðsdeildir starfandi á Eskifirði og Sauöár- króki. En félagið hefur alla tíö notiö aðstoðar unga fólksins í margvíslegu starfi. Merkjasalan hefur alltaf veriö aö mestu leyti í höndunum á skólakrökkum. Þau hafa líka aðstoðað viö ýmsar safnanir, sérstaklega er Afríku- söfnunin s. I. haust gott dæmi um þaö. Margvísleg sjálfboöastörf hafa líka veriö unnin af unga fólk- inu, hjálp viö blaðaútgáfu, flótta- mannamóttöku og fleira. Eggert Ásgeirsson, fram- kvæmdastjóri Rauða kross íslands, hefur þetta að segja um það hvernig hann hóf starf í Rauða krossinum. — En félagiö hefur reynt aö sinna æskufólki. Allt frá því að heimsstyrjöldin fyrri geisaði, en þá þurfti aö koma börnum úr Reykjavík vegna stríðshættu, þar til fram á síðustu ár hafa veriö barnaheimili í sveit. Sú starfsemi er nú aflögö, kannski vegna þess aö hennar var ekki lengur þörf. o — Getum við þá komist af án æskulýðsstarfs og tekist á við mörg ný verkefni án skipulagðs ungliðastarfs eins og Rauði krossinn kallar sitt æskulýðs- starf. — Nei ég held ekki. — Fyrst og fremst vegna þess aö verkefnin eru svo mörg, aö fé- lagiö ræöur ekki við þau án hjálp' ar ungliða Rauóa krossins. Hin hliöin er sú, aö félagið byggist alls ekki upp í framtíöinni án fólks sem þekkir starfsemina vel, hefnr tengst henni ungt og bindur tryggö viö hana. — En þaö er ekki nóg. Rauði kross íslands og deildir hans þurfa aö takast á viö verkefni sem er unga fólkinu áhugaefni að leysa. Félagiö þarf aö kenna ung- liöunum aó stjórna og skipulegg3 og veita nægilega aöstoö í Þvi efni. — Enginn vill starfa lengur að Rauöa kross málum en hann faer veróug laun fyrir. Þá á ég alls ekki vió peninga. Ég á miklu fremur við ánægju og aö fólk eigi eitthvaó að sækja til Rauða kross félags- skaparins. — Vilja ungliðarnir starfa með eldra fólki eða vilja þeir starfa sér í hópum? — Sjálfur hallast ég aö því að hvort tveggja þurfi aö eiga sér staö. En í báöum tilvikum þarf eitt aö vera fyrir hendi. Eldri félagar þurfa aö treysta unga fólkinu. Með 26

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.