Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.04.1981, Qupperneq 37

Æskan - 01.04.1981, Qupperneq 37
ER HÆGT AÐ SJÁ VEIRU (huldusýkil)? Veira er smæsta lífvera, sem or- sakar sjúkdóm. Hún sést ekki meö Venjulegri smásjá, en vísindin hafa þó 9etað rannsakað gerð hennar. Nú ata menn ultra-smásjár til að virða *yrir sér þessar örsmáu lífverur. En auk Pess geta vísindin aflað sér margs- °nar þekkingar um stærð og gerö 'nr|a mörgu veirutegunda, með raf- eindasmásjám. ^feindasmásjáin notar rafeinda- ðeisla í stað Ijósgeisla. Rafeindirnar ara 1 gegnum það sem á að skoðast, er 'endir á Ijósmyndaplötu og býr til n^ynd. Með þessari aðferð er hægt að st®kka það sem verið er að athuga, um 100,000 sinnum. ^eð aðstoð rafeindatækninnar hafa menn komist að því, að stærð veira getur verið frá 300 — 10 milljmíkrón, en eitt millímíkrón er einn milljónasti úr millimeter. Enginn veit enn meö fullri vissu hvað veirur raunverulega eru. Sumir vísindamenn álíta að þær séu ná- tengdar gerlum. Aðrir álíta þær nokk- urs konar ,,frumagnir“ í líkingu við genin (arfstofna). Og sumir telja þær vera millistig við lifandi, og ekki-lif- andi efni. Eftir því sem menn best vita, geta veirur aðeins þroskast og æxlað sig í lifandi vefjum, en það torveldar auð- vitað rannsóknir á eðli þeirra og lifn- aðarháttum. Menn hafa þvi orðið að sundurgreina veirur eftir möguleik- um þeirra til að smita lifandi frumur, og þeim viðbrögðum sem slíkt veldur í likama manna og dýra. Framleiða veirur eitur'eða eiturefni? Menn telja svo vera, en geta ekki að- greint það frá veiruögninni, og vita heldur ekki ennþá, hvernig þessi hugsanlegu eiturefni kveiki sjúkdóma — ef þau þá gera það. SUMARTUNGLIÐ Sumartungl heitir það tungl, sem er á lofti 5. maí, hvort sem það er ungt eða gamalt. Þegar maður sér það fyrst á maður ekkert orð að segja, heldur bíða, þangað til einhver ávarpar mann, og er mikið undir því komið, hvað þá er sagt við mann, því að þau orð eru óbrigðul spádómsorð, þó að oft séu þau á huldu. Þetta heitir, að ,,svara einhverjum í sumartungl- ið“. Það halda sumir, að þessi gamla trú í sambandi við sumartunglið sé ekki aldauð hér á landi enn í dag. ELGUR Eitt af þeim skógardýrum Norður- Evróþu, sem sífellt fer fækkandi, er elgurinn. Hann er stórt dýr, stærri en hestur, um 2 metrar á hæð um bóg- ana, háfættur, og fæturnir sterkir og stórar klaufirnar. Kemur það sér vel, þegar hann leggur leið sína um flóa og foræði, sem lítt fært mundi öðrum dýrum. Hann á oft fótum sínum fjör að launa, þegar hann flýr undan klóm rándýranna eða kúlu veiðimannsins. Stundum snýr hann móti óvini sínum, úlfum, gaupum o. fl. og beinbrýtur þau í einu höggi með framfótunum. Karldýrin hafa stór horn, og falla þau af árlega, en kvendýrið er kollótt. Hann er dökkgrár að lit nema fæturnir eru Ijósgráir. Elgir lifa af jurtafæðu, grasi, laufi og greinum og berki trjánna, einkum þykir þeim góður þörkur af öspinni. Elgir eru eftirsótt veiðidýr, bæði eru þeir stórir og svo þykir kjötið jafngott nautakjöti. in minnsta baktería sem þekkist, coli-fruman (1), er sett hér til stærðar- Samanburðar við nokkrar veirur: 2. Kúabóla — 3. Hettusótt — 4. Drep (kol- randur) — 5. Lömunarveiki 6. Gulusótt — 7. Inflúensa. Fyrirmyndirnar eru s,^kkaðar 6 ,000,000 sinnum. 31

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.