Æskan - 01.01.1983, Side 21
nýlega, og viö syrgjum hann öll,“ svaraði vöröurinn. „Ekkjudrottningin, sem nú
stýrir ríkinu, er versta norn. Hún gerir allt, sem hún getur, til aö koma í veg fyrir,
að stjúpsonur hennar, ungi prinsinn, nái völdum eftirföður sinn. Hann er jafnvel
ekki öruggur um líf sitt.“ „Þetta eru leiðinlegar fréttir,“ sagði stúlkan. „Ég ætla
að vita, hvort ég fæ ekki eitthvað að gera f kóngshöllinni, ef til vill get ég
eitthvað hjálpað þar.“ Hélt hún síðan áfram til hallarinnar. Þegar þangað kom,
vantaði prinsinn einmitt einhvern til að bragða á matnum, áður en hann neytti
hans, vegna þess, að hann var hræddur um, að nornin kynni að byrla sér eitur.
..Þorir þú að leggja þig í þá hættu að taka þetta að þér?“ spurði hann stúlkuna.
Hún kvaðst vera óhrædd, enda leist henni allvel á prinsinn, en hann var mjög
glæsilegur. Fór hún síðan beina leið út í eldhús og tók þegar til við starfa sinn.
Drottningin hafði beðið matreiðslumanninn að elda fullan pott af graut, það
1. Söngvalandið Wales á sér
auðkennilegan þjóðbúning. Brúða það-
an hefur þrönga, hvíta línhúfu á höfði,
og þar ofan á ber hún háan, svartan
„nornahatt". Auk þess klæðist hún
síðu, svörtu pilsi og hvítri blússu, en
rautt ullarsjal með kögri bægir burtu
köldu fjallaloftinu.
2. Hinar vinsælu skosku Hálanda-
brúður klæðast auðvitað Skotapilsum
og hafa leðurtösku í bandi um mittið.
Auk þessa er hin auðþekkjanlega tam-
o’-shanter húfa með dúsk, snotur jakki
og rýtingur við hnéð. Sumar skoskar
brúður hafa sekkjapípu á öxlinni og
örsmá merki með þistlum í húfunni.
21