Æskan - 01.01.1983, Side 29
23. „Ef þú veist ekki ráð, þá veit ég það ekki“,
sagði kerlingin. „Jú, ég á tólf Ijón úti í haganum.
Fáum við hann þangað, rífa þau hann í sig“,
sagði tröllið. Svo ákváðu þau, að hún skyldi
látast vera mikið veik og segjast aldrei verða
frísk aftur nema fá Ijónamjólk.
24. Morguninn eftir var kerlingin svo lasburða,
að fengi hún ekki Ijónamjólk, yrði hún aldrei góð
aftur, að eigin sögn. „Ég veit ekki hvar ég fæ þá
mjólk, móðir góð“, sagði stráksi. En þá sagði
tröllið honum frá haga sínum með tólf Ijónum.
25. Stráksi tók mjólkurfötu með sér og fann
Ijónin. Þegar hann nálgaðist þau, urðu þau æst
og stukku á móti honum. En stráksi tók á móti
forystu-ijóninu og sló því við stein, svo það
steindrapst.
26. Þegar hin Ijónin sáu þetta, urðu þau svo
dauðskelkuð, að þau lögðust á framfæturna
eins og skömmustulegir hundar. Síðan fylgdu
þau honum hvert sem hann fór og þegar hann
kom heim, biðu þau átekta fyrir utan húsið.
Skemmtileg myndasaga í litum