Æskan - 01.11.1983, Síða 4
En það bar til um þessar
mundir, að boð kom frá Ágústusi
keisara um að skrásetja skyldi
alla heimsbyggðina. Þetta var
fyrsta skrásetningin ergjörð var,
þá er Kýreníus var landsstjóri á
Sýrlandi. Og fóru þá allir til að
láta skrásetja sig, hver til sinnar
borgar. Fór þá einnig Jósef úr
Galíleu frá borginni Nazaret upp
til Júdeu, til borgar Davíðs, sem
heitir Betlehem, því að hann var
af húsi og kynþætti Davíðs, til
þess að láta skrásetja sig,
ásamt Maríu heitkonu sinni sem
þá var þunguð. En á meðan þau
dvöldust þar kom að því að hún
skyldi verða léttari. Fæddi hún
þá son sinn frumgetinn, vafði
hann reifum og lagði hann íjötu,
af því að það var eigi rúm fyrir
þau í gistihúsinu.
Og í þeirri byggð voru fjárhirð-
ar úti í haga og gættu um nóttina
hjarðar sinnar. Og engill drottins
stóð hjá þeim og dýrð drottins
Ijómaði í kring um þá og urðu
þeir mjög hræddir. Og engillinn
sagði við þá: Verið óhræddir,
því sjá, ég boða yður mikinn
fögnuð, sem veitast mun öllum
lýðnum; því að yður er í dag
frelsari fæddur, sem er hinn
smurði drottinn, í borg Davíðs.
Og hafið þetta til marks: Þér
munuð finna ungbarn reifað og
liggjandi íjötu. Og í sömu svigan
var með englinum fjöldi himn-
eskra hersveita, sem lofuðu
Guð og sögðu: Dýrð sé Guði i
upphæðum og friður á jörðu
með þeim mönnum, sem hann
hefur velþóknun á.
Og er englarnir voru farnir frá
þeim til himins, sögðu hirðarnir
hver við annan: Vér skulum fara
rakleiðis til Betlehem og sjá
þennan atburð, sem orðinn er
og drottinn hefur kunngjört oss.
Og þeir fóru með skyndi og
fundu bæði Maríu og Jósef, og
ungbarnið liggjandi í jötunni. En
þegar þeir sáu það, skýrðu þek
frá því, er talað hafði verið við
þá um barn þetta. Og allir, sem
heyrðu það, undruðust það,
sem hirðarnir sögðu þeim. En
María geymdi öll þessi orð og
hugleiddi þau með sjálfri sér.
Og hirðarnir sneru aftur og veg-
sömuðu og lofuðu Guð fyrir alll
það, er þeir höfðu heyrt og séð,
eins og sagt hafði verið við þá-
Lúkas: 2:
4