Æskan - 01.11.1983, Blaðsíða 11
r-
i
myrkur. Við fórum upp að Lögbergi og fengum að
gista þar um nóttina.
Lögberg var reist handa bændum sem komust
ekki yfir sandana fyrir vatnagangi. Daginn eftir var
hægt að halda áfram; þá fékk ég lánaðan hest og iét
konuna sitja á honum en teymdi sjálfur. Þegar við
komum að Ölfusi fékk ég annan vagn og á honum
komumst við klakklaust á leiðarenda.
Á Minniborg í Grímsnesi vann ég sem klæðskeri
og ferðaðist milli bæja í fjögur ár og gat þannig aflað
matar og tekna.“
Hefurðu unnið við eitthvað annað en klæða-
saum?
„Já, ég vann hjá Seðlabanka íslands í fimmtán ár.
Þar var ég sendill."
Söngstjóri
Góðtemplarahreyfingarinnar
Ég veit að þú hefur unnið mikið fyrir Góðtempl-
arahreyfinguna. Geturðu sagt mér frá því?
„Já, þar hef ég verið söngstjóri í 17 ár og organ-
leikari í stúkunni Freyju. Ég er búinn að vera 40 ár í
stúku en til að komast í söngstjórastarfið varð ég að
læra að stjórna kórum. Það lærði ég hjá dr. Róbert
Abraham sem var söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar og
stofnandi Fílharmoníukórsins."
Hvenær vaknaði tóniistaráhuginn hjá þér?
„Það var mjög fljótt. Ég var ekki nema 10 ára þegar
ég fór að fikta fyrst við hljóðfæri."
Hefurðu lært hjá mörgum kennurum um
ævina?
„Já þremur, og er enn að. Ég lærði hjá frú Peter-
sen og hafði gaman af. 82 ára fór ég að læra fótaæf-
ingar hjá Hauki Guðlaugssyni söngmálastjóra en
hann kom mér til Magnúsar Jónssonar húsvarðar í
Breiðholtsskóla. Síðan hef ég æft þrjá tíma á dag.“
Áttu fleiri áhugamál?
„Já. Síðan 1968 hef ég fengist við að sauma vegg-
teppi.“
Hvað gerirðu svo við þessi teppi?
„Ég gef þau; síðast gaf ég forseta íslands eitt. Það
er af því að hún er fyrsti þjóðkjörinn kvenforsetinn í
heiminum. Það er sama munstur í þessu teppi og því
sem var í íbúð Jóns Sigurðssonar úti í Kaupmanna-
höfn.“
Hefurðu verið bindindismaður alla ævi?
„Nei, ekki áður en ég gekk í Regluna."
Ottó Guðjónsson og Sigurður B. Stefánsson.
Af hverju hættirðu að drekka?
„Mér fannst þetta orðið alltof vanabindandi, nánast
um hverja helgi. Ég hugsaði ráð mitt og sé ekki eftir
því að hafa valið bindindi."
Hvernig líst þér á unga fólkið í dag?
„Mjög vel. Þetta er efnilegt og duglegt fólk en það
mætti veita því aðeins meira aðhald.“
Hvernig aðhald?
„Þá meina ég í uppeldinu. Foreldrarnir þurfa að
leiðbeina börnunum meira og gefa þeim tíma. Unga
fólkið verður líka að koma til móts við foreldrana. -
Ég vil bæta við að foreldrarnir hafa alltof mikið
áfengi inni á heimilum sínum. Þarna þarf að verða
hugarfarsbreyting því foreldrarnir eru auðvitað fyrir-
myndin."
Finnst þér áfengisvandamálið meira nú en
áður?
„Já, og sérstaklega hjá kvenþjóðinni. Það þótti
smán hér áður fyrr að sjá drukkinn kvenmann en nú
er það sjálfsagður hlutur. Það tíðkaðist ekki heldur að
kvenfólk væri reykjandi úti á götum. Það þótti ófögur
sjón.“
Að lokum, Ottó, þú ert ánægður í ellinni?
„Já, því ég hef alltaf nóg að gera. Ég leik á
hljóðfæri, sauma út, fer á stúkufundi, ferðast mikið til
útlanda og að auki fer ég sex sinnum í viku á bingó."
Með það kvaddi ég Ottó Guðjónsson enda
þurfti hann að fara að æfa sig á orgelið.
11