Æskan

Årgang

Æskan - 01.09.1986, Side 14

Æskan - 01.09.1986, Side 14
Æskuleikir áður fyrr Sláturtíð Á Borðeyri var jafnan slátrað tals- vert mörgu fé á haustin. Þá fengu sumir okkar strákanna einhverja vinnu meðan slátrunin stóð yfir, til dæmis við að kæla gærurnar eða hræra í blóðinu. Yfirleitt var þetta heldur óþrifaleg vinna og að mér fannst leiðinleg. Eftir að frystihús kom á staðnum fengu sumar eldri stelpurnar stundum einhverja vinnu líka. I sláturtíðinni var margt um mann- inn á Borðeyri því að þá var þar alltaf hópur aðkomufólks í vinnu. Oft var ýmiss konar gleðskapur á ferðum, einkum á kvöldin eftir að vinnu var lokið. Aðkomumennirnir höfðu til umráða gamalt pakkhús. Þar höfðu þeir mötuneyti og þar sváfu þeir flestir en sumir fengu þó inni hjá einhverjum kunningjum sín- um í þorpinu. Ég hafði þann starfa á hendi nokk- ur haust að sjá um gærurnar. Það verk var í því fólgið að þegar búið var að vigta gærurnar var þeim hent út og þar tók ég við þeim, breiddi úr þeim þannig að holdrosan sneri út og lét þær kólna. Síðan flutti ég þær í gæruskúrinn þar sem þær voru salt- aðar í stafla. Seinna voru gærurnar svo bundnar í búnt, tvær og tvær saman, og þannig voru þær fluttar á markaðinn. Stundum þegar gærun- um var skipað út var sá háttur hafður á að menn röðuðu sér upp með vissu millibili alveg frá gæruskúrnum og fram á bryggju og köstuðu búntun- um á milli sín eins og bolta. En ansi voru það nú þungir boltar. Jæja, ég var að segja frá sláturtíð- inni. Við strákarnir vorum oft að gera fullorðnu mönnunum ýmsar glennur, svona smáhrekki, oftast meinlausa þó. Einu sinni tókst samt verr til en við ætluðumst til. Þannig hagaði til að leiðin milli sláturshúss- ins og pakkhússins, sem verkamenn- irnir bjuggu í, lá um mjótt húsasund. Og nú datt okkur í hug að gaman væri að strengja band þvert yfir sund- ið, svona í axlarhæð á fullorðnum manni, og láta karlana ganga á það þegar þeir færu til vinnu eftir há- degismat. Við settum okkur fyrir hugskotssjónir hvernig körlunum yrði við þegar þeir lentu á bandinu. Þeir mundu áreiðanlega hrökkva heldur betur við, kannski mundu þeir segja ljótt. Við komum okkur fyrir í námunda við snöruna þegar leið að þeim tíma er karlarnir færu að koma út. Það ískraði í okkur hláturinn, við áttum sannarlega von á spaugilegum við- brögðum hjá köriunum. En þegar fyrsti karlinn kom út brá okkur dálítið illa við. Þetta var aldr- aður maður, mjög sjóndapur og orð- inn heilsuveill. Hann hafði aldrei gert neitt á hluta okkar, miklu frem- ur tekið svari okkar ef honum þótti á okkur hallað. Það var langt frá því að við vildum gera honum grikk eða stríða honum. Gamli maðurinn gekk í áttina til húsasundsins og átti sér einskis ills von. Við gátum ekkert gert annað en bíða átekta en tautuð- um ljótt í hljóði. Allt í einu kipptist gamli maðurinn við allhastarlega og við heyrðum hann formæla hroðalega. Við sáum líka hvernig hann strauk hálsinn þar sem snaran hafði lent. Svo tók hann upp vasahníf og skar á bandið. Þar með var það gamanið úti og hafði reyndar ekki orðið neitt gaman. Ekki minntist maðurinn neitt á þetta við hina karlana en okkur fannst hann líta þannig á okkur strákana fyrst á eftir að við töldum víst að hann grunaði okkur um græsku. Við vorum líka áreiðanlega hálf-skömm- ustulegir í návist hans lengi á eftir. Sem betur fór tókst sjaldan svona illa til þegar við vorum að „gera at“ í fullorðna fólkinu. I sláturhúsinu unnu jafnan nokkr- ar ungar stúlkur og þóttumst við strákarnir sjá að þær og yngri karl- mennirnir væru eitthvað að draga sig saman. Tókum við þá upp á því að njósna á kvöldin og skipulögðum njósnastarfsemina mjög hugvitssam- lega að okkur fannst. Þetta var ákaf- lega æsandi en oft fengum við ávitur hjá mæðrum okkar fyrir að vera að slæpast úti fram eftir öllum kvöldum- Einn njósnaleiðangur okkar mér sérstaklega minnisstæður. Við höfðum einhverra hluta vegna fengiö sérstakan áhuga á einu parinu og lögðum mikið kapp á að njósna sem rækilegast um háttalag þess. Svo var það eitt kvöld þegar ég og nokkrir fleiri strákar áttum njósna- vakt að dálítið meira bar til tíðinda en venjulega. Nokkru eftir kvöld- matinn hittumst við á planinu frarnan við pakkhúsið, sem verkamennirnir bjuggu í, og skiptum með okkur verkum. Sumir áttu að fylgjast með ferðum herrans ef hann skyldi fara ut úr húsinu en aðrir áttu að vakta dömuna. Stúlkurnar bjuggu sem se i öðru húsi, spölkorn frá pakkhúsinu. Ég lenti í þeim hópnum, sem atti að njósna um herrann, ásamt tveim- ur strákum. Ekki þurftum við lengi að bíða þess að pilturinn færi á kreik- Hann rölti fram á planið, svipaðist um þar og gekk svo áfram í áttina að húsinu sem stúlkurnar bjuggu í- Við læddumst á eftir honum en létum hann þó ekki verða varan við okkur. Þegar hann kom í námunda við kvennabúrið flautaði hann þrisvar sinnum hátt og myndarlega. Síðan sneri hann við og gekk til pakkhuss- ins aftur og hvarf okkur þar inn. Við töldum víst að hann hefði verið að gefa stúlkunni eitthvert merki þegar hann flautaði og datt okkur nú það snjallræði í hug að fella piltinn á sjálfs sín bragði, nefnilega flauta eins og hann hafði gert fyrir utan hja dömunni. Við hlupum því til baka og flautuðum rösklega nokkrum sinnum rétt hjá kvennabúrinu. Síðan hlupum við í felur en þó þannig að við töld' um okkur geta fylgst með manna- ferðum. Þannig biðum við lengi en ekkert gerðist. „Hann hlýtur að koma aftur,“ sagði einn í hópnum- „Kannski merkið hafi þýtt að þaU 14

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.