Æskan

Volume

Æskan - 01.09.1986, Page 39

Æskan - 01.09.1986, Page 39
Sannleiksopn^ ^sjón Pétur Porsteinsson I suniiiidaUiskól anum Þar sem sunnudagaskólar, kirkjuskól- ar, sem stundum eru á föstudögum eða laugardögum, eru almennt byrjað- ir þá þótti okkur í Sannleiksopnunni ágætt að helga eina opnu frásögn og fræðslu um þetta fyrirbrigði. Þegar minnst er á skóla verða menn ef til vill ekkert sérstaklega ánægðir. Ýmsum finnst skólinn eitthvað lítt skemmtilegt og miður áhugavekjandi, að ekki sé talað um að vakna eld- snemma á sunnudagsmorgnum þegar maður má sofa út. Hér er verið að tala um skóla sem er allt öðruvísi en hefðbundnir skólar þar sem kenndur er lestur, reikningur og skrift. í sunnudagaskólanum getur þú komið og skemmt þér. Þú mátt syngja fullum hálsi söngva sem eru léttir og skemmtilegir. Gjarnan líkir fólk með hreyfingum eftir textanum sem sung- inn er. Margir kannast við sönginn „Á bjargi byggði.“ Þá látum við hendurn- ar mynda hús, munda hamar eða við líkjum eftir rigningu með fingrunum. Við stöndum upp þegar við syngjum. Stundum notum við allan líkamann, til þess að tákna eitthvað, líkt og við værum í leikfimitíma. Það er því ekki ætlast til þess að við sitjum sæt og settleg allan tímann heldur að við tök- um virkan þátt í öllu því sem gerist. I sunnudagaskólanum eru sagðar sögur um Guð og lesið úr Biblíunni þar sem við heyrum um hvað Guð vill tala við okkur. Sóknarpresturinn eða aðrir þeir sem sjá um skólann útskýra það. Gjarnan eru sögur sagðar í sunnudagaskólanum og segjast sumir fullorðnir muna þær enn sumar hverj- ar þar sem þær lifa lengur í minning- unni heldur en langar ræður um sama efni. Þess vegna hvetur Sannleiksopnan ykkur til að fara í sunnudagaskólann eða kirkjuskólann. Þar er alltaf gaman að koma til að fræðast um Guð og syngja saman og hitta aðra krakka. Þess vegna skuluð þið spyrja foreldra ykkar eða forráðamenn hvort ekki se sunnudagaskóli eða kirkjuskóli í na- grenninu til þess að þið getið farið og kynnt ykkur starfsemi hans og helst tekið þátt í honum. Svo má ekki gleyma því að í sunnu- dagaskólanum fáið þið myndir til þesS að fara með heim. Sumar á að hta heima og þannig getið þið smátt og smátt komið ykkur upp safni af mynd' um sem segja frá því hvað Jesús Krist- ur gerði fyrir okkur mennina. Hér í opnunni eru viðtöl við nokkra krakka sem segja frá því hvernig það er að vera með í sunnudagaskólanum og það er ágætt að lesa þeirra vitnis- burð um veruna þar. Bryndís Þórisdóttir, 16 ára Mér fannst skemmtilegast þegar sögur voru sagðar og dæmisögur Jesus Krists útskýrðar. Þá fannst mér söng- urinn skemmtilegur. Ég hef gaman af að syngja og nýt söngsins. Þess vegna get ég sungið núna og það er ekkert Fura Jóhannesdóttir Bryndís Þórisdóttir Olafur Tómasson Kristín Jóhannesdóttir skrítið fyrir mig eins og fyrir marga sem ekki eru vanir að syngja. Nei, mér lnnst ekkert asnalegt að syngja eins °8 sumum sem ekki eru vanir því. í því a æfingin í sunnudagaskólanum ^■kinn þátt. Einnig þótti mér dýrmætt ö hitta í sunnudagaskólanum aðra rakka sem maður vissi að voru dstnir. Þeir komu til þess að fræðast arn Guð og hlusta á hvað Guð hefði v,° okkur að tala. Þarna í sunnu- askólanum var öruggt að við hitt- Um aðra sem voru að pæla í þessu Sama. P Ura Jóhannesdóttir, 11 ára Það er nauðsynlegt að vita meira um Guð en að hann sé til. Sumir krakkar vita reyndar að Guð er til. Síðan vita þau ekkert meira. Það hjálpar manni heilmikið í daglega lífinu að geta talað við Guð - ekki aðeins þegar manni líður illa heldur líka þegar vel gengur. En þá gleymum við honum svo oft. Svo kem ég líka af því að við syngj- um svo mikið í sunnudagaskólanum. Ég kem frekar af því að ég get sungið með. Ef ég ætti að þegja í klukkutíma þá kæmi ég ekki í sunnudagaskólann. Það er alveg öruggt. Þá væri þetta eins og í skólanum. Þar eigum við alltaf að þegja. 8 fer í sunnudagaskólann til þess að æra um Guð. Það er gott að fræðast Urn hann, hvernig Jesús varð til og Vað hann gerði fyrir okkur. Mér finn- s sögurnar vera skemmtilegastar í |Unnudagaskólanum. Maður man þær ngi á eftir og þær útskýra margt bet- Ur langa, rtóur. Kristín Jóhannesdóttir, 10 ára Ég fer í sunnudagaskóla af því að ég trúi á Guð. Við biðjum og syngjum saman. Skemmtilegast finnst mér að syngja. Þá hitti ég aðra krakka og finnst ekkert vont að vakna á sunnu- dagsmorgnum. Það eru ekki allir sem trúa á Guð og fyrir þá væri betra að koma í sunnu- dagsskólann til þess að fræðast um hann, heyra sagt frá honum. Núna erum við nýbyrjuð í sunnudagaskólan- um eftir sumarfríið og ég var farin að hlakka mikið til þess að byrja aftur. Olafur Tómasson, 11 ára Mér finnst skemmtilegast að koma í sunnudagaskólann til þess að hlusta á sögurnar og syngja hreyfisöngvana þar sem líkt er eftir hinu og þessu í söngn- um. Einnig er gott að hlusta á það sem Guð vill tala við okkur og að við skulum geta talað við hann líka. Það er betra að vera trúaður í lífinu ef eitthvað kemur upp á. Svo er ég líka í KFUM þannig að ég heimsæki Guð tvisvar í viku. Það eru allt of fáir sem vita um Guð og þeim veitir ekki af að koma í sunnudaga- skólann og fræðast meira um hann ogv hlusta á hann. 38 39

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.