Æskan

Volume

Æskan - 01.09.1986, Page 41

Æskan - 01.09.1986, Page 41
„fílgúra* 'niðju jarðar. Sammi bjargar ungri stúlku úr voða og vanda — og flýgur á töfrateppi yfir fjallgarða í Kína. Þættirnir hafa verið sýndir víða um heim við miklar vinsældir °g hafa hlotið ýmis verðlaun. Ævintýri bjamanna í túni-landi. Birnirnir sex birtast okkur í goðsagnakenndum og töfrum slegnum heimi fyrri tíðar - en stíga einnig inn í hinn raunverulega heim og eiga skipti við fólk — indælt og illt. Trúir hugsjónum forfeðra sinna leggja þeir ætíð lið hinu góða í baráttu mót því illa. ^eir virða vináttu, dug og dreng- skap, hlýlega framkomu og hollar lífsvenjur. Margt ævintýralegt - og ekki síður spaugilegt — drífur á daga Þeirra. í neðanjarðarheimkynnum bjarnanna eru frábærar hraðrenni- ^rautir sem þeir nota sér óspart. Og þeir fá ofurkraft við að bergja á Gúmberjasafanum — stökkva yfir ðkleifa veggi og fara hraðhlaupum kílómetrum saman...! fljálparhellan Hjálparhellan (Danger-Mouse) er í leyniþjónustunni og berst gegn hinu illa — í hvaða mynd sem er — fyrir frelsi og réttlæti. Verkefnin eru óþrjótandi. Hjálparhellan verður að vinna að þeim á heimskautaslóðum - í myrkvið- um frumskóga og úti í geimnum. Óvinurinn birtist í mörgum mynd- um, lævís og svikull... Ævintýrum Hjálparhellunnar verður ekki auðveldlega lýst hér með einföldum orðum. Við ætlum þó að freista þess að nefna nokkur atriði úr einum þættinum: Nýjasta vopn Grænbaks greifa, höfuðóvinar Hjálparhellunnar, er geisli sem flytur með sér einstaka óheppni og jafnvel ógæfu... Sleppur vinur vor út úr herbergi sem óðum fyllist skýi argrar óheppni? Hvað tekur hann til bragðs þeg- ar hann hefur verið bundinn við flugskeyti sem skotið er út í geiminn? Er nokkur von um undankomu þegar honum er varpað í búr til villtrar górillu? Hefur hetjan okkar komið ógn- arsteininum illa svo kirfilega fyrir að honum verði ekki oftar beitt — eða..? Hver er sá ógurlegi ó- skapnaður sem skyndilega lokar leið..? Þættirnir hafa verið sýndir í 38 löndum og vakið óhemju hrifn- ingu. 41

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.