Æskan - 01.09.1986, Page 47
Veggmynd af Creifunum
Kæra Æska.
Eg hef mikiö dálæti á Greifunum.
^egar ég sá þá á forsíðu 5. tölublaðs
hélt ég að veggmynd af þeim fylgdi
hlaðinu. Ég varð fyrir miklum von-
hrigðum þegar ég sá að svo var ekki.
Viðtalið var frábært en veggmyndina
vantaði. Getið þið ekki bætt úr þessu?
Bless, bless
Ein á Bolungavík
Ein að deyja úr ást
Kaera Æska.
Draumaprinsinn minn er meðalhár
með blá augu og dökkskollitað hár.
Hann er í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði
°g á heima á Álfaskeiði. Hann er oft á
hvítri Hondu og heitir Atli.
Ein að deyja úr ást í Hafnatfirði
Xáttkjólamir
Olíufurstinn í stórmarkaðinum:
~ Ég ætla að fá þessar slár með
náttkjólunum.
^fgreiðslukona:
" En þeir eru af mörgum stærðum,
herra.
Olíufurstinn:
" Ágætt! Konurnar mínar líka.
Linda
Má senda Æskunni efni?
Kæri Æskupóstur.
Ég vil byrja á því að þakka fyrir
mjög gott blað. Mig langar til að fá
svör við nokkrum spurningum.
1. Getið þið ekki birt framhaldssögur?
2. Af hverju eruð þið ekki með sér-
stakan þátt fyrir draumaprinsalýsing-
ar?
3. Má ég senda blaðinu teikningar eftir
sjálfa mig?
4. Má ég senda myndir af skólanum og
segja frá honum?
5. Senda krakkarnir sjálfir svör við
þættinum Okkar á milli eða talið þið
við þá að fyrra bragði?
Elsku ritstjórar. Ég vona að rusla-
fatan sé södd því að mig langar mikið
til að fá svör við ofangreindum spurn-
ingum.
Madonna
Svör:
1. Við höfum verið með framhalds-
sögur í síðustu blöðum, t.d. söguna
Manna eftir Jón Dan og svo er byrjuð
ný saga fyrir litlu börnin sem nefnist
Spúki. Gert er ráð fyrir að birta nýja
sögu fyrir stálpaða krakka fljótlega.
2. Við höfðum þann hátt á í byrjun en
höfum nú valið þann kostinn að birta
þessi bréf í bland við önnur í Æsku-
póstinum. Heil síða eingöngu með lýs-
ingum á prinsum og prinsessum yrði of
einhæf til lengdar.
3. Gjörðu svo vel!
4. Gjörðu svo vel!
5. Við tölum við þá að fyrra bragði.
Þeir eru valdir af handahófi, t.d. þegar
blaðamaður og ljósmyndari fara út á
götu til að safna efni í þáttinn Æskan
spyr.
ViII kynnast strák
Kæri Æskupóstur.
Ég er að austan og mig langar til að
kynnast 12-13 ára strák frá Akureyri
eða Reykjavík. Ég er 158 sm há, blá-
eygð og með skolleitt hár og ljósar
strípur. Ég vil ekki láta nafns míns
getið en ef einhver hefur áhuga sendi
hann svarið til Æskupóstsins ásamt
mynd af sér og nánari lýsingu á áhuga-
málum og högum.
Ein á Eskifirði
47