Æskan - 01.06.1987, Síða 4
REYKLAUST ÍSLAIÍ
nefnist samstarfshópur sem kom-
ið var á fót árið 1985 að frum-r
kvæði Krabbameinsfélagsins. í
honum eru fulltrúar fjölmargra
félagasamtaka sem hafa samein-
ast um að ná því marki að ísland
verði orðið reyklaust um nœstu
aldamót.
Það er ekki ný bóla að tóbak sé
skaðlegt efni. 100 ár eru síðan
barnastúkurnar skáru upp herör
gegn því. Og blaðið okkar, Æsk-
an, hefur lagt sitt á vogarskálarn-
arfráþvífyrir aldamótin 1900. Þá
var aðvörunum oft komið áfram-
fœri með stuttum ábendingum,
gjarna sem samtal eða skrítla eins
og þessi dœmi sýna:
Jón: Mér þykir ekkert gaman að blóta og
læknirinn segir að það sé óhollt að reykja; svo
þarf líka peninga til þess að kaupa tóbakið.
Eg vil heldur hafa aurana sem ég vinn mér inn
til þess að kaupa eitthvað handa systkinum
mínum og gefa þeim það á jólunum.
(5. tbl. 7.12.1897)
Ungur maður sat hjá unnustu sinni í fagurri
fjallshlíð. Útsýnið var hið yndislegasta. Fyrir
neðan voru blómþaktar grundir og allt í
kringum þau sungu fuglar í fagurlaufguðum
trjágreinum.
„Ó, hve allt er fagurt!" sagði maðurinn.
„Pað er eins og allir hlutir hafi tekið höndum
saman til þess að gera okkur lífið sem
skemmtilegast. En svo heitt elska ég þig að ég
væri fús til að deyja og yfirgefa alla þessa sælu
ef ég þyrfti að gera það þín vegna.“
„O, þér þykir langt of vænt um mig, elskan
mín,“ svaraði unnusta hans, „ég verðskulda
það ekki. En fyrst þú vilt nú á annað borð
leggja svona mikið í sölurnar mín vegna þá
gerðu nokkuð fyrir mig sem er langtum minna
vert; hættu að reykja!"
„Æ, ég get ekki hugsað til þess. Ég hef
reykt svo lengi að ég get ómögulega vanið mig
af því hvað sem það kostar; nei, það geri ég
ekki fyrir nokkurn mann.“
„Jæja, góði minn,“ svaraði unnusta hans,
„nú veit ég hversu einlæglega hugur fylgir
máli þegar þú segist vilja leggja lífið í sölurnar
fyrir mig þar sem þú metur mig ekki eins mik-
ils og pípuna þína.“
(15. tbl. 5.5. 1898)
Krakkar, við treystum á að þið hugsið skynsamlega, — segja Sif og Hóf'-
Takmark
Krabbameinsfélag Reykjavíkur hef-
ur verið ötult í baráttu gegn tóbaks-
reykingum og fitjað upp á ýmsum nýj-
ungum. í október 1976 hóf félagið út-
gáfu blaðsins Takmarks og hafa komið
út 31 tölublöð til þessa. Takmarki er
m.a. dreift í alla grunnskóla, einkum til
nemenda í 5.-8. bekk og er nú gefið út í
27.000 eintökum. Ritstjórar Takmarks
eru Þorvarður Örnólfsson og Jónas
Ragnarsson.
í 1. tbl. 11. árgangs er birt bréf frá feg-
urðardrottningunum Sif og Hófí til les-
enda; grein um kannanir á reykingum
nemenda í grunnskólum; verðlauna-
getraun í tilefni 10 ára afmælisins og
frásögn af útgáfu veggmynda og barm-
merkja með áletruninni: Ég er í reyk-
lausa liðinu — en þú?
Þó að þú, lesandi góður, hafir eflaust
lesið Takmark viljum við birta glefsur
úr því til áréttingar — enda er góð v ba
aldrei of oft kveðin , eins og máltæki
segir!
Komdu í
reyklausa liðið
segja Hófí og Sif í auglýsingamyndim11-
í bréfinu til lesenda Takmarks segja
þær m.a. :
Hæ, krakkar!
Við megum til með að skrifa ykkú
nokkrar línur. Okkur þykir leitt til þeS^
að vita að sumir unglingar skuli vera a
byrja að reykja enn þann dag í dag P°
að allir ættu að geta séð að sígarettiú
eru „tóm tjara", samsafn af skaðlegú111
efnum sem fara inn í líkamann °f
skemma hann, fingurnir gulna, húðú1
eldist og hrukkast fljótar — og utl1
fertugt gæti maður jafnvel verið koú1
inn með krabbamein eða kransaeða
stíflu af reykingunum.
4