Æskan - 01.06.1987, Page 11
Frá lesendum
KISAN MÍN
Vrir nokkrum árum langaði
'g rnjög mikið í eitthvert dýr en
arr,ma og pabbi sögðu ávallt nei
egar ég bað um það. Svo gerðist
a ýitt sinn að til okkar komu
^stir frá Suðureyri við
^gandafjörð. En viti menn!
ly®ar bílhurðin var opnuð stökk
1 ' kettlingur út. Fólkið sagði að
an þeirra hefði nýlega eignast
yettlinga 0g þau þyrftu að losna
j,1 þá. Svo gáfu þau okkur
b^linginn. Mamma, ég og Palli
°ðir minn vorum mjög glöð yfir
°i°önni — en pabbi var lítið
hrrfinn.
n ^stirnir voru hjá okkur í
kkra daga en fóru svo heim
Ur- Mamma saumaði litla græna
,Us handa kettlingnum að leika
^er að. Pabbi fann svo nafn á
^ Un’ Hann var skírður Bryndís
^hrarn. Pabbi hafði svo oft horft
, tl,ndina okkar og konan, sem
a stjórnaði þættinum, heitir
'nmitt þessu nafni.
bif
B
tyndís fékk hálsband með
JJöllu um hálsinn. Það var rautt
eð bláum steinum. Svo liðu
margir mánuðir. Bryndís stækkaði
mikið. Hún þurfti að þola margt
því að ég var bara sex ára en Palli
bróðir minn þriggja. Við kunnum
ekkert með dýr að fara. Við
tókum hana upp á skottinu og
klæddum hana í dúkkukjóla. Svo
ókum við henni í dúkkuvagni sem
ég átti. Hún var svo óróleg í
vagninum að við settum teppi yfir
hann og festum það með
klemmum til þess að hún kæmist
ekki út úr honum.
Eitt sinn var fjölskyldan að
grilla kjöt út í garði. Þá birtist
Bryndís allt í einu með tvo fugla í
kjaftinum. Annar var dauður en
hinn hálsbrotinn. Þá var pabba
nóg boðið. Hann tók fuglana af
henni og sagði svo að hann færi
með hana til dýralæknisins á
Húsavík daginn eftir til að láta
svæfa hana djúpum svefni. Og það
gerði hann. En nú eigum við tvo
hamstra og erum bara ánægð.
Una Kristín Árnadóttir,
Lynghrauni 8,
Reykjahlíð.
í ÚTILEGU
í sumar fór ég í skemmtilega
útilegu með vinkonu minni sem
er jafngömul mér, — 12 ára. Við
eigum heima í Borgarnesi. Við
fórum í Húsafell sem er ekki
mjög langt frá og sváfum í tjaldi í
tvær nætur. Þetta er í fyrsta sinn
sem við förum í útilegu án full-
orðna fólksins. Við höfðum feng-
ið leyfi í vor til að fara einar og
byrjuðum þá strax að leggja drög
að útilegunni. Við söfnuðum að
okkur ýmsum föngum, svo sem
mat og öðru góðgæti. í Húsafelli
fórum við í gönguferðir í ná-
grenninu og í sund. Við fengum
svo systkini annarrar okkar í
heimsókn á öðrum degi dvalar-
innar. Veðrið var mjög gott allan
tímann og þetta var frábær úti-
lega.
Þóra (dulnefni)
ALLT
SVO
LÍTIÐ
í litlum skógi var lítið hús og á
litla húsinu voru litlar dyr. Inn af
litlu dyrunum var lítill gangur og
inn af honum var lítið herbergi. I
litla herberginu var lítill skápur
og í litla skápnum var lítið sjón-
varp. í litla sjónvarpinu var
Ómar Ragnarsson að segja fré.tt-
ir.
Frá Ingu Birnu 9 ára.
11