Æskan - 01.06.1987, Page 22
Bjartsýnir maurar
Kæri Æskupóstur!
Einu sinni var fíll á gangi. Hann
varð fyrir því óláni að stíga ófan á
mauraþúfu. Allir maurarnir klifruðu
upp á hann en hann hristi þá alla af
sér nema einn. Þá öskruðu hinir til
hans:
— Kyrktu hann! Kvrktu hann!
Sendandi: Þröstur Ólafsson,
Bláskógum 13, 700 Egilsstöðurn.
Lögfræðinám
Ég er 13 ára stelpa í Keflavík og hef
verið áskrifandi að Æskunni í 5 ár.
Mér finnst þú alveg meiriháttar
blað! En nú langar mig til að spyrja
nokkurra spurninga. Getur þú birt
póstföng spænskra, kínverskra og
japanskra blaða sem geta útvegað
pennavini? Ég á þejgar norska, þýska
og sænska pennavini sem ég fé'kk í
Æskunni. Að síðustu langar mig til
að spyrja þriggja spurninga um lög-
fræðinám:
1. Hvar lærir maður lögfræði?
2. Parf að hafa lokið einhverju
fornámi áður en sjálft lögfræðinámið
hefst?
Svar: Póstfang pennavinaklúbbs í
Japan er:
Association of Pen Friend
Club of Japan
Azabu P.O. Box No 1
Minato Ku Tokyo — 106 Japan.
Við höfum ekki heimilisfang blaða í
Kína eða á Spáni en bendum þér á að
leita til alþjóðlegra pennavinaklúbba
sem ef til vill geta komið þér ísamband
við pennavini í þessum löndum.
Heimilisföng tveggja slíkra klúbba
voru birt í 5. tbl. Æskunnar 1987.
Svör við spurningum um lögfrœði-
nám:
1. í Háskóla íslands.
2. Þú þarf að hafa lokið stúdents-
prófi.
3. Að meðaltali 5-6 ár.
Morten í A-Ha
Hæ, hæ Æska!
Hér læt ég í té dálitlar upplýsingar
um söngvarann Morten Harket í
A-ha!
Nafn: Morten Harket
Störf foreldra: Mamma hans er
kennari en pabbi hans læknir.
Systkini: Fjórar systur og þrír bræð-
ur.
Áhugamál: Blómarækt og trúmál.
Tómstundagaman: Ballett.
Markmið: Að reyna að finna hina
einu sönnu ást!
Besta mynd: Krókódíla-Dundee.
Vill líkjast: King kong (górillu!).
Sendandi:Maríal5 ára, Hafnarfirði.
Galtalækjarmótin
frábær!
Kæri Æskupóstur!
Ég vil þakka bindindishreyfing-
unni fyrir æðislegt barnablað og frá-
bær Galtalækjarmót. Þau eru
skemmtilegustu útihátíðir sem ég
hef farið á til þessa.
Jóna Irís Hjaltested,
Draumaprinsar
Kæra Æska!
Ég hef verið hrifin af strák í möt?
ár — sennilega 4 ár. Hann er nýleg3
orðinn 15 ára. í fyrstu var hann
lega hrifinn af mér. Hann bað rnir
oft um að koma út með sér á kvöld-
in. Síðan bættist önnur stelpa við og
hann varð ofsalega hrifinn af hennr
Núna lítur hann ekki við mér. Ég er
alveg í rusli út af því.
Vonandi verður þetta birt.
Ein ástfangin.
Ég vil byrja á því að þakka fyör
æðislega sögu eftir Sigurbjörgn
Þrastardóttur í 2. tbl. þessa árs. Svo
vil ég lýsa draumaprinsinum mínuni’
Hann er hávaxinn (miðað við mig)-
dökkhærður og með ljósar stríput’
Hann er mikil handboltahetja og að
sjálfsögðu æðislega sætur.
Ein úr deildinni.
Draumaprinsinn minn er ljóS"
hærður með blá augu, meðalhár
vexti og svakalega sterkur. Hann er
góður í knattspyrnu og fljótur að
hlaupa. Svo'er hann ofsalega sætur-
Hann á heima í Vestur-Húnavatns-
sýslu.
Ég.
Mig langar til að lýsa prinsinum
mínum. Hann er brúnhærður og
með ljósar strípur. Hann er bláeygð'
ur og mjög vel vaxinn. Hann er yfír'
leitt vel til fara. Fyrsti stafurinn >
nafni hans er M. Hann er mjög oft á
hjólabretti og er í Víðistaðaskóla >
Hafnarfirði.
Ein 13 ára — afar ástfangin•
Mig langar til að lýsa prinsinum
mínum. Hann er svarthærður með
gleraugu og var í sama bekk og ég
síðasta vetur. Hann er með brún
augu og æðislega sætur og vel vax-
inn. Hann heitir Gísli og er alltaf
smekklega klæddur. Hann er mjög
oft á hjólabretti.
3. Hvað tekur námið langan tíma?
Með fyrirfram þökk og von um
birtingu.
Hulda
Mið-Grund, V-Eyjafjöllum.
Ein mjög ástfangin.
ÆSKUPOSTURINN
22