Æskan - 01.06.1987, Page 29
ÆSKAN Á PATREKSFIRÐI
„Töpum ekki stórt! “
^ ^ðamaður Æskunnar var á ferðalagi
estfjörðum í byrjun síðasta mánað-
J °§ tók nokkur viðtöi við krakka. Hér
það fyrsta en það var tekið á Pat-
y sflrði- Öðru nafni nefnist þorpið
®tneyri. Þar búa rúmlega 1000
nns. Patreksfjörður er vestasta
kauPtúnið
>búí
á Vestfjörðum. Flestir
arnir hafa lifibrauð sitt af sjávar-
ar'e8'- Eitt af kunnustu skáldum okk-
r> Jón úr Vör, er fæddur og uppalinn
b?r> frá Patreksfirði er stutt að Látra-
Jargi, vestasta odda álfunnar og að
allatrum vestustu byggð hennar.
C Atrákarnir sem rætt var Vlð heita
g.U. mundur Rúnar Ævarsson og
báð^'ÍH ^ari Gunnarsson. Þeir eru
11 ára. Þeir voru að koma úr
undi 0g á leið á knattspyrnuæfingu.
by sPurðir sögðust þeir fara í sund á
u erJUm degi. Útisundlaug er á staðn-
r uðmundur Rúnar fæddist á Pat-
es«rði Og ólst þar upp fyrsta aldurs-
8^'á átt' s'^an heima á Bíldudal næstu
r’ en fluttist svo aftur til Patreks-
arðar. Hann segir að það hafi verið
b0it að vera á Bíldudal því að þar
se • tU aii'r aiia’ ”^n sv0 kannskl
0 ®a að hér á Patreksfirði sé meira líf
§ ]ör því að þorpið er stærra. Það eru
°stir og gallar við báða staði,“ bætir
Qann við.
»Mér líkar mjög vel að eiga hérna
eeima>“ segir Björgvin. „Krakkarnir
st rfágætir °8 ég á marga vini. í sumar
0a ég með pabba mínum við að
le a a ðát. Hann heitir Tálkni og er rúm-
tQnn. É| mála hann að innan en
va °laðutan. Égvinnfrá8—2. Nei.ég
há' e^k' enn kva^ Paððl ðorgar mér
lt kauP fyrir að aðstoða sig.“
Hvaða áhugamál eigið þið?
^jergvin; „Mér þykirgaman að hestum
§ rjálsum íþróttum. Stundum leigi ég
s er kest til útreiðar. Ég er núna að
na fyrir hesti og vonast til að geta
ypt hann sem fyrst. Ég æfi flestar
Rætt við knattspyrnukappa á Patreksfirði
bjartsýnir fótboltakappar. Guðmundur Rúnar og Björgvin Karl
Hressir og
greinar í frjálsum íþróttum en keppi að-
allega í hlaupum."
Guðmundur: „Ég hef mestan áhuga á
að veiða. Stundum renni ég fyrir silung
og lax. Æi, það er frekar erfitt að fá þá
til að bíta á. Mér gengur þó betur að
beita ormi en flugu.“
— Komið þið oft til Reykjavíkur?
„Nei, fremursjaldan. Kannski tvisv-
ar sinnum á ári í mesta lagi. Við höfum
svo sem ekkert sérstakt að sækja þang-
að. Jú, það er alltaf gaman að fara í bíó
og leiktækjasali — svona fyrstu dag-
ana.“
Eitt skot í þrem
leikjum
Ég bað strákana næst að segja mér
dálítið frá knattspyrnufélagi sínu.
„Við æfum með 5. flokki Harðar,“
svara þeir. „Guðmundur er í framlín-
unni en Björgvin á miðjunni. Við erum
með ágætt lið þó að okkur hafi gengið
illa í íslandsmótinu. Við höfum tapað
þau þrjú skipti sem við höfum keppt.
Okkur gengur þó betur en í fyrra. Við
töpum ekki eins stórt!“
— Hafið þið gert mörk í þessum
leikjum?
Björgvin: „Nei. Ég hef aðeins náð einu
góðu skoti á markið í þrem leikjum.“
— Er ekki haldið Vestfjarðamót
yngri flokka í knattspyrnu?
„Jú, en það er ekki byrjað.“
— Er kvikmyndahús á staðnum?
„Já, það eru sýningar tvisvar í viku.
Myndirnar eru oft bannaðar yngri en 16
ára. Séu þær bannaðar 12 ára og yngri
sleppum við inn og einnig ef við erum í
fylgd með einhverjum eldri þegar ald-
ursmörkin eru 14 ár.“
— Að lokum. Eru margar sætar
stelpur á Patreksfirði?
„Við erum ekkert að spá í þær!“
svara strákarnir um hæl — og hverfa á
braut þegar við höfum þakkað fyrir
samtalið.
Það er eins gott að leikmenn Harðar
verði ekki of seinir á æfingar. Þeir eru
staðráðnir í að ná betri árangri í næstu
leikjum.
29