Æskan

Volume

Æskan - 01.06.1987, Page 31

Æskan - 01.06.1987, Page 31
s.ern.runna en sá hvergi neitt. En vj -ndilega kom ég auga á spor. Þau v rtust liggja um allan garðinn. Þetta ru spor eftir stóra fætur. Við hlið st'r.ra lágu minni spor eftir litla efp e^a btinn dreng. Ég læddist sá1 r sldðinni og í hvert sinn, sem ég skugga hreyfast, hrökk ég við. f i 'dðin lá aftur fyrir húsið og ég v;e^' henni. Ég sá að rótað hafði nð í spýtnarusli hjá geymsluskúrn- *• ^dr var farið að kólna og því ge . ég aftur inn í húsið. Hvað var 'ginlega að gerast? Átti ég kannski hringja í lögregluna? Eg klæddi ra'lf -^etur °§ f°r attur ut- t*egar eg n sPorin áfram sá ég að rósirnar 0 lnar höfðu verið traðkaðar niður §'unnarnir voru eins og hvirfilbyl- ^r hefði gengið yfir. Nú lá slóðin aft- ut að hliðinu. Þeir sem áttu sporin 0 ðu farið út á götuna. En hverjir °ru þetta? Hvaða erindi áttu þeir far'ö^urðinn ni'nn? Hvert höfðu þeir 't kafli ^krásettur af Gauta Hallssyni: Eg varð að komast að þessu öllu arilan. Ég gekk því að hliðinu, opn- 0 J Það skjálfandi á beinunum og e, k út á götu. Slóðin lá að bílnum u lnum eða því sem eftir var af hon- ^111- Það var búið að rífa afturhásing- na af og sprengja bæði framdekkin. o ar rúður voru brotnar og lágu jnerbrotin allt í kringum bílinn og n' í honum. Ég var alveg miður ln því að mér þótti nefnilega vænt -rF1 pennan bfl. Hann var af gerðinni rabant station de luxe. Kringum bílinn var allt útsparkað. Ég reyndi að greina slóð út úr spark- inu en það var erfitt vegna þess að engir ljósastaurar voru í þessari götu. Þegar ég var að því kominn að gefast upp vegna myrkurs og kulda fann ég slóð sem lá burt frá bílflak- inu. Pað leit út fyrir að eigendur sporanna hefðu hlaupið. Ég ákvað að fara inn og ná mér í vasaljós því að það var svo dimmt. í bakaleiðinni fór ég fram hjá bílnum. Kom ég þá auga á blóð í mölinni. Blóðflekkirnir voru ekki stórir svo að bersýnilega hafði blóðrennslið verið stöðvað áður en skemmdarverkamennirnir héldu á brott. Þegar ég hóf að rekja slóðina á ný fann ég hana brátt við vegarbrúnina. Sporin voru greinileg og því auðvelt að fylgja þeim. Á næstu gatnamót- um skiptist slóðin. Litlu sporin lágu beint áfram en þau stóru til vinstri. Ég var með krónu í vasanum og ákvað að kasta upp um það hvert skyldi halda. III. KAFLI Frásögn Sigurðar J. Sölvasonar Ef skjaldarmerkið kæmi upp færi ég til vinstri, beint áfram ef þorskur- inn kæmi upp. Upp kom þorskurinn og ég hélt áfram að næsta götuhorni. Þar var slóðin alveg horfin. Allt ípinu fann ég að hníf var þrýst í bakið á mér. Sá sem ég elti hafði falið sig í skotinu hjá dyrum kaupmannsins á horninu. Hann sagði mér að ganga áfram. Ég fann blóð vætla niður bakið á mér en þó var sársaukinn lítill. Sviti rann niður andlit mitt. Maðurinn öskraði á mig að halda áfram þar til hann segði til. Ég gekk af stað og beygði þar sem hann sagði mér. Við vorum komnir inn í hrör- legt hverfi en þar sagði hann mér að nema staðar og opna hurð á einu húsinu. Það ískraði í hurðinni og inni var loftið mettað fúa- og myglulykt. Hann skellti hurðinni á eftir okkur og sagði mér að halda áfram inn langan gang. IV. KAFLI Frá Jóni A Sigtryggssyni: Ég sá að ég yrði að hlýða mannin- um. Ef ég hikaði átti ég á hættu að verða rekinn í gegn. Við héldum því inn eftir ganginum og ég var eins og í leiðslu, ég var svo hræddur. Allt í einu var gangurinn á enda. Til hægri var hurð og hann skipaði mér að opna hana og fara inn. Ég gerði eins og fyrir mig var lagt, opnaði hurðina og fór inn. Þar sá ég lítinn dreng. Hann hnipraði sig inn í eitt hornið þegar maðurinn kom inn og virtist vera að reyna að færa sig frá honum. Þegar maðurinn sá þetta varð hann fjúkandi vondur og æddi að strákn- um sem hnipraði sig nú enn meira saman. Ég greip tækifærið meðan það gafst og hljóp út um dyrnar sem hann hafði gleymt að loka. Ég hljóp eins og fætur toguðu. Ég var kominn langt fram í gang þegar maðurinn tók eftir því að ég var sloppinn. Hann hljóp þá strax á eftir mér. En nú var ég kominn út. Hvert skyldi halda næst? 31

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.