Æskan - 01.01.1990, Síða 14
Unglingadeild Leikfélags Hafnarfjarðar
hefur fært á fjalir leikritið, Þú ert í blóma
lífsins, fíflið þitt! Það var sýnt í Bæjarbíói í
Hafnarfirði í janúar og væntanlega hefur
það verið leikið víðar en þar þegar blaðið
berst ykkur í hendur því að deildin hefur
boðist til að fara með leikverkið í skóla.
Leikmynd var höfð mjög einföld til þess
að unnt væri að fara milli staða án mikils
kostnaðar; hún er aðeins þrír kassar og
tjald!
Leikfélagið auglýsti í skólum í Hafnar-
firði eftir leikendum og hafði erindi sem
erfiði — margir áhugasamir unglingar vildu
taka þátt í leiksýningu. Byrjað var á nám-
skeiði í „spunavinnu" og fleiru og síðan
var tekið til við að semja leikrit. Leik-
stjórinn, Davíð Þór Ólafsson, lagði fram
hugmynd um efnið og krakkarnir fjölluðu
um það í litlum hópum, oftast 4-5 saman;
sömdu leikritið þannig í spunavinnu. Leik-
stjórinn lagði síðan lokahönd á verkið
með samræmingu hugmynda. Árangur var
sýnilega góður því að leikritið hefur verið
sýnt við mikla hrifningu.
Tuttugu unglingar taka þátt í sýning-
unni. Þeir setja hana upp sjálfir með leik-
stjóranum; sjá um að stjórna Ijósum, farða
og kynna verkið - auk þess að leika.
Unglingadeildin er sú eina af því tagi sem
starfar nú á landinu en nokkur leikfélög
munu hafa haft þennan hátt á í einstök
skipti.
Mér fannst þetta forvitnilegt og fékk
því tvo af aðalleikurunum til að ræða við
mig, þau Stefán Karl Stefánsson og Þór-
unni Evu Hallsdóttur.
víðreist; á hverju ári hefur verið farið eitt-
hvað út fyrir landsteinana. Það hafa ekki
verið sömu krakkarnir í hvert sinn heldur
hefur kórstjórinn, Egill Friðleifsson, valið
hóp til ferðarinnar. Á þessu ári er kórinn
20 ára. í tilefni af því er efnt til mikils
ferðalags og allir kórfélagar fara með.
- Áttu fleiri áhugamál en leiklist og
kórsöng?
„Ég hef verið í Ijósmyndaklúbbi í skól-
anum síðan í 7. bekk. Ég hef líka ákaflega
gaman af því að fara í tjaldferðalög; í þau
hef ég oftast farið með tveimur vinkonum
mínum.“
- Hefur þú ferðast mikið um landið
- eða erlendis?
„Dálítið um landið. Við höfum oft farið
í veiðiferðir, fjölskyldan. Mamma er með
„veiðidellu". Hún stundar mest silungs-
veiði. - Við fórum til Hollands þegar ég
var tíu ára. Við vorum þar í þrjár vikur og
ég var veik tvær þeirra."
- Áttu gæludýr?
„Ég á páfagauk - hef átt hann í eitt ár.
Við látum hann fljúga einu sinni á dag en
hann er ósköp latur. Hann hefur þá áráttu
að eta blöðin af blómunum okkar.“
- Hefur þú ákveðið skólanám eftir
grunnskólann - og framtíðarstarf?
„Ég ætla að verða stúdent en annað er
óákveðið.“
- Hefur þú lært á hljóðfæri?
„Ég byrjaði í tónlistarskóla sjö ára og
reyndi við ýmis hljóðfæri en entist ekki
lengi með hvert. Ég var alltaf að hætta og
byrja aftur.“
- Hverjir eru eftirlætistónlistarmenn
þínir?
„Sykurmolarnir. En ég hef líka mjög
gaman af óperum."
Félagar í unglingadeild Leikfélags Hafnarfjarðar
Sykurmolarnir og óperur
Þórunn Eva Hallsdóttir er fimmtán ára,
fædd 13.5. 1974. Hún er nemandi í Öldu-
túnsskóla eins og Stefán og flestir leik-
aranna. Leiklist er helsta áhugamál hennar;
hún segir að sér finnist „æðislega garnan"
að spreyta sig á sviði. Hún hefur þó ekki
fengist við leik síðan hún var í barnaskóla;
byrjaði aftur í haust í starfi með unglinga-
deildinni.
Þórunn hefur sungið með kór Öldu-
túnsskóla frá tíu ára aldri og fer með kór-
félögum sínum í söngferðalag til Banda-
ríkjanna um páskana. Kórinn hefur gert
14 Æskan