Æskan

Årgang

Æskan - 01.05.1990, Side 44

Æskan - 01.05.1990, Side 44
stöðumaður stöðvarinnar hætti haustið 1987 tók Eiríkur við stöðu hans og ég stöðu Eiríks." - Hoer er tilgangurinn meö þessari stöö? “Tilgangurinn er að auðvelda eigend- um kostagripa að halda þá sem stóð- hesta. Búnaðarfélag Islands rekur stöð- ina. Peir sem eiga stóðhesta, einstak- lingar og hrossaræktarsambönd, sækja um að koma þeim að og þeir eru valdir sem þykja fallegastir og gangbestir. Við ölum stóðhestana og temjum þá. Peir eru síðan sýndir og þeim gefnar einkunnir. I vor fengu sjö þeirra einkunn sem nægir til að mega fara á sýningu á Landsmóti hestamanna í sumar. Eig- endur þeirra ákveða síðan með okkur hvort farið verður með þá þangað.“ Hefur komið hægt og sígandi... -Ætlar þú aö keppa þar á Dimmu? „Eg verð með Dimmu í sumar ef allt gengur að óskum. Eg hef raunar verið að þjálfa fleiri hesta en eftir er að sjá hvað verður. Pað þarf að fara með þá í úrtökumót áður en að Landsmóti kem- ur.“ - Átt þú Dimmu? Tamdir þú hana? „Sveinn Runólfsson á Dimmu. Pegar ég tók við henni var hún aðeins reiðfær. Eg tamdi hana með öðrum hrossum og fór að keppa á henni eftir nokkurn tíma. Við náðum ekkert sérstökum árangri í byrjun en þetta hefur komið hægt og sígandi." - Nokkrir lesendur hafa spurt hvar þeir geti lært aö temja hross ... „Ég verð með Dimmu i sumar ef allt gengur að óskum. “ Ljósm.: EJ „Pað er að miklu leyti sjálfsnám. Peir sem hafa mikinn áhuga á að starfa við tamningu geta reynt að fá vinnu hjá þeim sem stjórna tamningastöðvum eða einstaklingum sem temja hesta. En það er ekki auðvelt að komast að. Pað er raunar nauðsynlegt að hafa verið mikið með hross og lært af því að um- gangast þau. I Bændaskólunum fæst góð undir- staða. í þeim er líka verknám í þrjá mánuði og þá fara nemendur á bú e a tamningastöðvar. Pað er hægt að l02^ mikið á þeim tíma ef maður er heppinrj með stað. En það sem maður l3erir skólanum dugar naumast eitt til að 9eta gert sér vonir um sigur í SkeifukepPn' inni, til að mynda. Ég get viðurkennt núna, þó að ég n kannski ekki gert það meðan ég var . náminu, að markmið mitt með verU Bændaskólanum var í rauninni að v,n þá keppni. Ég vissi að það myndi a velda mér að fá vinnu við tamninð þar sem ég sæktist eftir henni. Það n ur líka komið á daginn." ,7 - Byrjaöir þú ung aö keppa sem knap1'^ „Ég byrjaði meðan ég var heima Mosfelli, fyrst á innanfélagsmóti nne Gabríel. Pá var ekki keppt í ungl>n3a flokkum. Mér gekk þokkalega, varð ^ Verðiaunahafar í töltkeppni á íslandsmótinu 1989. Ljósm.: SS inni' Éð lega í fjórða sæti í fyrstu keppn Síðar keppti ég á Fjórðungsmótum- sinnti þessu þó ekki af neinni alv fyrr en eftir að ég var með tamninö stöð Fáks. , „ Nú geta krakkar keppt við jafr13 sína í hestaíþróttum. Áhuginn á þvl ^ ur aukist mikið eins og á flestu öðrU sviði hestamennskunnar. Fjöldi ba og unglinga stundar þessa íþrótt. Pað er ánægjulegt hve áhugi á he ^ mennsku er orðinn mikill því að hun þroskandi og tilbreytingarík." 48 Æskan

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.