Æskan - 01.08.1991, Qupperneq 10
til nú vegna annarra verkefna og
viðgerða á Þjóðleikhúsinu."
- Hvaö standa sýningar
lengi yfir?
„Frumsýning var 15. septem-
ber og það verður leikið .. bara
eins lengi og fólk kemur, senni-
lega fram í vor."
-Miklar œfingar
- Er erfiöara aö leika í leikriti
en þiö hélduö?
Hrafnhildur og Erla: „Já, þab
er erfiöara en við áttum von á."
Gunnlaugur: „Mér finnst það
auðveldara en ég hafði haldið."
- Afhverju finnst ykkur þaö
erfiöara en þiö bjuggust viö,
stelpur?
Hrafnhildur: „Þetta er meiri
vinna en ég hélt."
Erla: „Eg vissi ekki ab maöur
ætti að fara svo oft á æfingar."
- En Gunnlaugur, af hverju
finnst þér þetta auöveldara en
þú áttir von á?
Gunnlaugur: „Af því vib erum
ekki með neinn texta, þurfum ekki
að segja neitt. Það er þægilegt að
þurfa ekki ab muna setningar."
- Hvaö finnst ykkur
skemmtilegast í skólanum?
Hrafnhildur: „Mér finnst
skemmtilegast í reikningi."
Erla: „Frjáls tími."
Gunnlaugur: „Það er mest
gaman í teikningu, finnst mér."
- Hafiö þiö fengiö frí úr
skóla vegna œfinga?
Hrafnhildur: „Nei, en vib þurf-
um kannski að fá frí seinna. Þab
eru ekki kvöldsýningar svo vib
þurfum Iftið frí."
Gunnlaugur: „jú, það verba
kannski tvær kvöldsýningar í vet-
ur og svo er einhver hátíð og þá
þurfum vib að leika um kvöld."
- Hvaö leikiö þiö?
Hrafnhildur og Erla: „Úlfa."
Gunnlaugur: „Ég leik úlf og
Litla tröll."
Þœgilegt ab leika
á móti œttingjum
- Erla, afi þinn leikur meö þér í
þessu leikriti. Og Gunnlaugur,
mamma þín leikur einnig í því.
Hvernig er aö leika í leikriti meö
„ Þaö veröur leikiö
.. bara eins lengi
og fólk kemur..."
Ljósm.: Odd
Stefán
7 0 Æ S K A N
œttingjum sínum?
„Mjög þægilegt," segja þau
bæbi.
- Um hvaö er leikritiö?
„Það er um stelpu sem fer ab
leita ab týndum systrum sínum
og Búkollu. Hún trúir ekki á tröll
og skessur en lendir svo í hönd-
unum á þeim og ýmsum ævin-
týrum."
- Hver eru aöaláhugamál
ykkar?
Erla: „Aðaláhugamál mitt er
söngur."
Hrafnhildur segir sitt áhuga-
mál vera hesta en Gunnlaugur
segist ekki eiga neitt sérstakt á-
hugamál.
- Fariö þiö oft í bíó eöa leik-
hús?
Hrafnhildur: „já, en oftar í bíó.
Svo fer ég á nokkur leikrit yfir
veturinn."
- Hvert er eftirminnilegasta
eöa skemmtilegasta leikrit sem
þiö hafiö séö?
Hrafnhildur: „Óvitar. Það var
mjög skemmtilegt leikrit."
Erla: „Oliver Twist."
Gunnlaugur: „Þetta leikrit sem
vib erum ab leika í núna."
- Hverjar eru eftirlœtis
hljómsveitir ykkar og söngvar-
ar?"
Hrafnhildur: „Ég hef helst dá-
læti á Jimi Hendrix."
Erla: „Stuömenn eru eftirlæt-
ishljómsveitin mín. Eftirlætis-
söngkonur mínar eru Ragnhild-
ur Gísladóttir og Sigríður Bein-
teinsdóttir."
Gunnlaugur: „Ég fylgist ekki
mikiö með þessu. Ætli ég sé ekki
hrifnastur af Þursaflokknum."
- Langar ykkur til aö veröa
leikarar?
Hrafnhildur: „já, það væri allt
í lagi ab reyna á það. Samt er
mér ekkert kappsmál ab verða
leikari."
Erla: „Já, mig langar til ab
verða leikari."
Gunnlaugur: „Ég er ekki á-
kveðinn í hvab ég ætla að
veröa."