Æskan - 01.08.1991, Síða 33
Seybisfjörbur...
„ Madur gekk hér
skakkur um götur"
Rœtt vib Evert Ingjaldsson, fyrrum blabbera
„Ég get ekki sagt aö það séu
margar sætar stelpur hérna á
Seyöisfirði," sagði Evert Ingjalds-
son 1 3 ára þegar blaðamaður
Æskunnar tók hann tali fyrir aust-
an í sumar. „En þó eru þær alls
ekki fallegri í nágrannabyggð-
unum, biddu fyrir þér! Ég held
að seyðfirskar stelpur séu bara
ósköp venjulegar, bæði sætar og
ófríöar. Annars er ég ekkert að
spá í stelpur."
- Hvert leitar þá hugurinn
helst?
„Ég á mörg áhugamál og hef
alltaf nóg að gera. Ég er til dæm-
is í Skólalúðrasveit Seyðisfjarðar,
- leik á baritónhorn. Ég var á
tenórhorni um skeið en skipti.
Svo hafði ég um tíma mikinn á-
huga á að æfa sund en hætti. Ég
fór í fýlu út í þjálfarann af því að
hann gleymdi mér í Aurasund-
inu."
- Aurasundinu? Hvaö er
þaö?
„Það er ágóðasund í þágu
sundhallarinnar. Sundfólkið
gengur í hús og safnar áheitum.
En þjálfarinn gleymdi að útbúa
eyðublöð handa mér og láta mig
vita og þess vegna hætti ég. Ég
byrjaði upphaflega að æfa sund
út af þessu Aurasundi. Nei, ég
hef aldrei synt í sjónum hérna,
hann er of kaldur, en ég hef synt
í Fjarðará nokkrum sinnum. Það
er gaman að stinga sér í hana
ofan af brúnni. Jú, hún er dálít-
ið köld en það venst."
Evert nefndi að honum þætti
einnig gaman að leika knatt-
spyrnu og mini-golf - og fara í
útilegur. Þegar viðtalið vartekið
var hann á leiö í tveggja mán-
aða ferðalag með pabba sínum
til Svíþjóöar, Danmerkur og
Þýskalands. Hann segist oft hafa
komið til útlanda síðustu árin.
Evert Ingjaldsson
KAF-klúbburinn
„Svo gleymdi ég að nefna einn
klúbb sem ég er í," skaut Evert
inn í þegar hér var komið í sam-
talinu. „Það er KAF."
- Ha?! Hvað merkir það?
Hann varð sposkur á svip, fitj-
aði upp á nefið og sagði:
„Það er Kjaftaklúbbur afburða
blaðbera. Þetta byrjaði þannig
að við þrír strákar, sem áttum
það sameiginlegt að vera blað-
berar, fórum að hittast reglulega
til að horfa á myndbönd, kjafta
saman og fleira slíkt. Ég bar út
DV, Moggann, Tímann, Þjóðvilj-
ann, Austurland, Pressuna og Al-
þýðublaðið - en er hættur því
núna. Ég er samt enn í klúbbn-
um."
- Blaðburðarpokarnir hljóta
stundum að hafa verið þungir.
„jú, maður gekk hér skakkur
um göturnar með helgarblöðin.
Stundum flaug maður á haus-
inn í hálku og óveðrum. Það var
ægilegt. Ég varð að biðja
mömmu að aka mér í slíkum
veðrum. Æ, maður var orðinn
þreyttur á þessu undir lokin."
Evert er í 8. bekk. Auk þess aö
eiga heima á Seyðisfirði hefur
hann átt heima á Stokkseyri og
í Reykjavík, eitt ár á hvorum stað.
Hann segir að það sé best að
vera á Seyðisfirði því að þar séu
allir svo skemmtilegir.
Að síðustu var hann spurður
að því hvað hann langaði til að
starfa í framtíðinni.
„Ég er ákveðinn í að fara í
Leiklistarskólann eftir að ég hef
lokið einhverri gráðu í iðnskóla
eða háskóla," svaraði hann að
bragði, auðheyrilega vanur að
tjá sig um það. Mig hefur lengi
dreymt um að verða leikari. Mig
langar líka til að verða kokkur
eða bakari eins og afi minn var.
En ef leiklistin veröur ofan á sem
aðalstarf er hætt við að ég geti
alls ekki átt heima á Seyðisfirði.
Þá færi nú í verra!"
Æ S K A N 3 7