Æskan - 01.08.1991, Page 53
svo sem „I rememberyou", „18 and
life", „Piece of me" og síbast en ekki
síst „Youth gone wild" (Á villigötum).
Skid Row var stofnuð af Rachel Bol-
an bassaleikara og Dave „Snake"
Sabo gítarleikara fyn'r um þaö bil fimm
árum. Þeir kynntust þegar þeir unnu
báðir í hljóðfæraverslun. Síðar bætt-
ust í hópinn Rob Affuso trommuleik-
ari og Scotti Hill gítarleikari. Á tímabili
höfðu þeir söngvara sem hét Matt
Fallon en hann var að lokum rekinn af
því að þeim þótti hann ekki góður.
Þegar þeir voru búnir að fá um-
boösmenn og semja lög á eina plötu
vantaði aðeins söngvara sem gæti
sungið lagið Á villigötum („Youth
gone wild"). Leit var hafin að nýjum
söngvara. Fyrir tilviljun fékk hinn nítj-
an ára gamli Sebastian Bach frá
Toronto í Kanada aö prófa að syngja
lagið. Hann varsíðan ráðinn íhljóm-
sveitina formlega í október 1987. Plat-
an „Skid Row" kom út í janúar 1989.
Hún náði strax miklum vinsældum
og varð metsöluplata. í Bandaríkjun-
um einum seldist hún í fjórum millj-
ónum eintaka. í framhaldi af útgáfu
hennar fór hljómsveitin í tónleikaferb
og hitaði upp fyrir sveitir eins og Bon
jovi, Mötley Crue og Aerosmith.
Hljómsveitin Bon Jovi hjálpabi aðeins
til við að koma henni á framfæri
vegna þess að þær eru báðar frá New
jersey.
Um þab leyti sem „Slave to the
grind" kom út í vor fór „Skid Row" í
rúmlega þriggja mánaða tónleika-
ferðalag meb ekki ófrægari hljómsveit
en Guns N' Roses. Ég spurbi spilar-
ana á blaöamannafundi sem haldinn
var 4. september í Reykjavík hvernig
þeim hefbi líkab á því ferðalagi. Þeir
svörubu því til ab þeim hefbi líkab
mjög vel og þetta hefði veriö anna-
samur tími. Þeir komu að jafnaöi fram
fimm sinnum í viku.
Þeir voru líka spurðir ab því hvað
þeir hefbu gert áður en hljómsveitin
var stofnuö. Rachel Bolan sagði að
Dave „Snake"
Sabo gítarleikari
Sebastian Bach
söngvari
Scotti Hill
gítarleikari
Rob Affuso
trommuleikari
Rachel Bolan
bassaleikari
flestir þeirra hefðu verið í hljómsveit-
um ábur en líka unnið fyrir sér á ann-
an hátt, vib að mála hús og í bygg-
ingavinnu.
Blaöamaðurspurði hvaða ráð þeir
gætu gefið ungu, íslensku tónlistar-
fólki sem ætlaði sér að ná langt. Rob
Affuso trommuleikari sagbi ab það
sem þeim hefbi tekist ætti öðrum líka
ab takast. Þetta væri þab eina sem þá
félaga langabi til að gera, þeir hefðu
lagt hart ab sér og fylgt eigin stefnu
en ekki sakabi að þeir hefbu líka ver-
ib heppnir.
Æ S K A N 5 7