Æskan - 01.10.1992, Qupperneq 3
EFNISYFIRLIT
Spurningakeppnin okk-
ar - getraun og bókar-
kynning - bls. 21
Kæri lesandi! m—mmmm
Eflaust hefur þú lesið um verðlauna-
samkeppni Æskunnar, Barnaritstjórn-
ar Ríkisútvarpsins og Flugleiða í 8. tbl.,
á bls. 14-15. Þá hefur þú séð að
aðalverðlaunin eru ferð til Lúxem-
borgar. Vonandi hefur þú líka tekið eft-
ir því að allir sem senda Ijóð og sög-
ur í keppnina fá bók að launum.
Frestur er til 1. desember.
Margir hafa þegar sent okkur Ijóð
eða sögu - eða hvort tveggja. Þá sem
eiga eftir að senda Æskunni „hugverk”
sín minni ég á að nefna hvaða bók þeir
kjósa sér (- sjá lista á bls. 55).
Grein um áfangastað aðalverð-
launahafa, Lúxemborg, sérðu þegar
þú flettir yfir á næstu síðu.
Þáttur um íslensk börn, sem dveljast
erlendis, hefur nú göngu sína. Guðrún
Þuríður Höskuldsdóttir í Bandaríkjun-
um varð fyrst til að senda okkur frá-
sögn og myndir. í skólanum „hennar”
eru krakkar frá 34 löndum!
í leikhúsunum eru og verða margar
skemmtilegar barnasýningar í vetur. í
8. tbl. Æskunnar var sagt frá Línu
langsokk á Akureyri - í þessu blaði er
viðtal við Sigurð Sigurjónsson og Örn
Árnason, aðalleikarana í Dýrunum í
Hálsaskógi, en það leikrit verðurfrum-
sýnt í Þjóðleikhúsinu eftir fáeina daga.
Hér er einnig að finna frásögn um sýn-
ingu Borgarleikhússins: Heima hjá
ömmu. Síðar verður sagt frá leikritinu
Ronju ræningjadóttur.
Ég vænti að þið verðið því fegin að
rými skuli varið til að greina frá öllum
þessum áhugaverðu leikritum ...
Með hlýrri kveðju,
Karl Helgason.
Barnablaðið /Eskan — 9. tbl. 1992. 93. árgangur.
Skrifstofa er aö Eiríksgötu 5,3. hæð • Sími ritstjóra er 10248; á afgreiðslu blaðsins 17336; á skrifstofu 17594
• Áskriftargjald fyrir 6.-10. tölublað 1992:1980 kr. • Gjalddagi er 1. sept. • Áskriftartímabil miðast við hálft
ár • Lausasala: 450 kr. • Póstáritun: Æskan, pósthólf 523,121 Reykjavík • 10. tbl. kemur út 10. desember.
• Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Karl Helgason, hs. 76717 • Framkvaemdastjóri Guðlaugur Fr. Sigmundsson •
Teikningar: Búi Kristjánsson • Útlit, umbrot, litgreiningar og filmuvinna: Offsetþjónustan hf. • Prentun og
bókband: Prentsmiðjan Oddi hf. • Útgefandi er Stórstúka íslands I.O.G.T. • Æskan kom fyrst út 5. október
1897.
VIÐTÖL OG GREINAR
5 „Hið græna hjarta Evrópu”
- um Lúxemborg, áfangastað
verðlaunahafa
8 „Full vinna að vera fyndinn”
- rætt við Sigurð Sigurjónsson
pg Örn Árnason leikara
14 í hádeginu
- þátturinn Heil á húfi!
28 Tveir strákar í klípu
- sagt frá leikriti Borgarleikhússins:
Heima hjá ömmu
30 Gvendarlaug
56 Á ferð um Finnland
- verðiaun í áskriftargetrauninni
SÖGUR
17 Sagan af Völu og bangsanum Bessa
22 í heimavist
- kafli úr nýrri unglingabók
27 Of venjulegt - eða ...
- framhaldssaga lesenda
40 Langamma í karate
48 Innilokaðir
TEIKNIMYNDASÖGUR
13 Reynir ráðagóði
18 Björn Sveinn og Refsteinn
35 Ósýnilegi þjófurinn
50 Eva og Adam
ÞÆTTIR
15 Frá ýmsum hliðum
- Jón K. Guðbergsson skrifar
16 Úr ríki náttúrunnar
20 Héðan og þaðan
24 Æskupósturinn
42 Poppþátturinn
52 Skátaþáttur
58 Æskuvandi
61 Tónlistarþáttur
- Gamalt og nýtt um NKOTB
ÝMISLEGT
4 Frumlegasta umsiagið
6,7,38,39 Þrautir
21 Spurningakeppnin okkar
- getraun og bókarkynning
26 Skrýtlur
- úr nýrri bók, Enn meira skólaskopi
37Tveirvinir -leikþáttur
41 Kátur og Kútur
45 Við safnarar
47 Erlendir pennavinir
53 Heil á húfi!
- getraun
54 Pennavinir
55 Lestu Æskuna?
62 Verðlaunahafar og
lausnir á þrautum í 7. tbl.
VEGGMYNDIR
Simpansar
Hljómsveitin Kiss
Forsíðumyndin er af Erni Árnasyni og Sigurði Sigurjónssyni sem Lilla klifurmús
og Mikka ref. Ljósm.: Odd Stefán.
Æ S K A N 3