Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1992, Síða 5

Æskan - 01.10.1992, Síða 5
„HIÐ GRÆN£ HIARTA EVROPU” ■ minnum á sam- \ \l /'l |f Í1 keppnina um wm ■mL' bestu smásöguna og besta Ijóðið - og getraunina - sem kynnt voru í 8. tbl. 1992. Frest- ur til að senda sögur, Ijóð og svör ertil 1. desembernk. Munið að allir sem senda Ijóð og sögur fá verðlaun: Æskubók að eigin vali. Hér á eftir fer lýsing Margrétar Hauksdóttur í kynningardeild Flug- leiða á áfangastað aðalverðlauna- hafa: Vinningshafar í smásagna- og Ijóðakeppni og verðlaunaget- raun Æskunnar, Flugleiða og Ríkisútvarpsins hljóta að þessu sinni ferð til Lúxemborgar. Flugleiðir og áður Loftleiðir hafa rekið áætlunarflug til Lúxemborgar allt frá árinu 1955. Nú eru þangað daglegar ferðir og suma daga, sér- staklega yfir sumartímann, hafa ferð- irnar verið tvær. Werðlaunahafarnir munu fljúga á- samt fararstjóra frá Flugleiðum í einni af hinum nýju Boeing 757- 200 vélum félagsins. Lúxemborg er gjarnan kölluð „Hið græna hjarta Evrópu” og eru það orð að sönnu. Það eru fá lönd sem bjóða upp á jafnmikla feg- urð og fjölbreytileika í landslagi á jafnlitlu svæði. í norðurhlutanum er fjalllendi en suðurhlutinn erfrjósamt landbúnaðarland. Um þriðjungur landsins erskógi vaxinn. Lúxemborg er hertogadæmi og íbúar eru um 370 þúsund. Þrjú lönd liggja að Lúxemborg: Belgía, Frakkland og Þýskaland. Margir þeirra íslendinga, sem leggja leið sína til Lúxemborgar, taka bíl á leigu og aka frá Lúxemborg, t.d. til þessara landa. Ekki þarf að aka nema í hálfa til eina klukkustund til að fara yfir landamærin. Ekki er ólíklegt að verðlaunahaf- arnir lendi í slíkri ferð, t.d. til Metz í Frakklandi en nálægt Metz býr skemmtilegur þjóðflokkur sem nefn- ist Strumpar. En það er svo sem ekki nauðsyn- legt að fara út fyrir landamæri Lúx- emborgartil að hitta skemmtilegt fólk og skoða merkverða staði. Þar erfjöldinn alluraf glæsilegum bygg- ingum frá miðöldum og má þart.d. nefna Viandenkastalann og rústir Bo- urscheldkastalans. Að staldra við á slíkum stöðum er líkt því að hverfa aftur í miðaldir. Afar víða eru falleg- ir litlir bæir og þorp með sérkennileg- um þröngum strætum eins og t.d. Diekirch og Ecternach. Og það þarf ekki einu sinni að fara út fyrir höfuðborgina til að finna áhugaverða staði. Höfuðborgin, sem heitir Lúxemborg var á miðöldum eitt rammgerðasta vígi í gervallri álf- unni. Gamli borgarkjarninn er í fal- legu dalverpi og girtur með miklum borgarmúr sem gaman er að skoða. í múrnum er flókið kerfi ganga sem komu að góðum notum í síðari heimsstyrjöldinni þegar þeir voru notaðir sem loftvarnabyrgi. Hertoga- höllin sjálf er einnig merkileg bygg- ing en hún er frá 16 öld. Um alla borg eru gamlar byggingar, kaffihús og veitingastaðir og í Lúxemborg blandast andblær miðalda og nútíma samfélags. Lúxemborg er ákaflega vinaleg og falleg og mun án efa taka vel á móti verðlaunahöfum Æskunnar. Æ S K A N S

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.