Æskan - 01.10.1992, Síða 14
HEILAHUFI
Laufey
Steingrímsdóttir:
I HADEGINU
Er enginn heima þegar þú kemur
heim úr skólanum í hádeginu? Ef
svo er ertu ekki einn á báti því að
fjöldinn allur af krökkum kemur að
tómu húsi eftir skólatíma og bjarg-
ar sér upp á eigin spýtur. En það er
mesti misskilningur ef þú heldur að
það sé einhver afsökun fyrir rusl-
fæði að enginn sé heima til að taka
til fyrir þig matinn. Það er nefnilega
ekkert erfiðara eða meira mál að út-
búa hollan mat en óhollan.
Brauð, mjólk eða jógúrt og ávöxt-
ur er líklega einfaldasta útgáfan af
hollum hádegisverði sem flestir
krakkar ættu að geta útbúið sjálfir
svo framarlega sem þeir geta verið
einir heima. Áleggið þarf heldur ekki
endilega að vera margbrotið þótt það
geti óneitanlega orðið leiðgjarnt til
lengdar að borða ævinlega það sama
dag eftir dag. Þess vegna getur ver-
ið gott að breyta stundum til, jafnvel
þótt skinka eða ostur sé eftirlætis-
áleggið. Það getur til dæmis verið
ágætt að eiga stöku sinnum tilbúið í
ísskápnum annars konar álegg, ann-
að hvort niðursneitt egg og tómat
eða ef til vill salat úr túnfiski eða
rækjum að ógleymdri gúrku og kæfu,
allt eftir því hvað ykkur finnst gott
og hvað ertil á heimilinu.
Heitt ostabrauð er vinsælt hjá
mörgum krökkum. Þeir sem á ann-
að borð hafa aldur og þroska til að
nota ofn geta til tilbreytingar sett
bakaðar baunir í tómatsósu á brauð-
ið, skellt ostsneiðum yfir baunirnar
og hitað allt saman í ofni í eldföstu
fati þar til osturinn hefur bráðnað,
alveg á sama hátt og venjulegt osta-
brauð.
Mestu máli skiptir þó að fá sér
einhvern almennilegan mat í hádeg-
inu. Því hætt er við því að sætindi,
kex og aðrir næringarsnauðir auka-
bitar verði til að seðja hungrið þeg-
ar líða tekur á daginn ef hádegismat-
urinn er lítill og lélegur. Sælgæti, kex
og „snakk“ (hrökkbitar) veita ekki
þau næringarefni sem eru nauðsyn-
leg ungu fólki til að þau nái árangri
hvort heldur er í námi eða íþróttum.
Brauð, mjólk og ávöxtur eða hrátt
grænmeti er holl næring í hádeginu.
Það getur verið auðveldara að
borða hollan mat en þú heldur.
(Laufey Steingrímsdóttir, Ph.D.,
er næringarfræðingur og skrifstofu-
stjóri Manneldisráðs)
14 Æ S K A N