Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1992, Page 23

Æskan - 01.10.1992, Page 23
inn í skólann. „Sævar," sagði einhver strákur í hópnum glaðlega. „Hann var hérna í skólanum í fyrra, rosalega góður í körfubolta, hélt liðinu al- gjörlega uppi." (Þröstur og Jónas eru saman í herbergi en svo vill til að Sævar verður herbergisfélagi Gústa. -----Síðar um daginn ...:) Hurðin var rifin upp og Þröstur ruddist inn í herbergið eins og uxi. Á eftir honum læddist Jónas, nið- urlútur að vanda. „Það er til siðs að banka áður en maður veður inn," sagði Sævar höstuglega. „Ó, afsakið yðar hágöfgi, ég vissi ekki að hér byggju konung- ar," hrópaöi Þröstur og hneigði sig. Svo hló hann eins og fífl, en Jónas fór allur í flækju. „Nú, einn af þessum sem alltaf þarf að vera sniðugur," sagði Sæv- ar með fyrirlitningu. „Þetta er bara hann Þröstur, þessi hávaxni sem ég sagði þér frá," sagði Gústi afsakandi. „Já og hann Jónas," bætti Þröst- ur við. Hann þreif í Jónas og stillti honum upp fyrir framan sig. Jónas eldroðnaði, en Sævar virti þá fyrir sér með hálfgerðri fyrir- litningu. „Hæ, strákar, ég heiti Sævar," sagði hann áhugalaust. „Hæ, Sævar! Átt þú þetta rosa- lega teppi? Þú lítur út eins og arabahöfðingi þarna á skærlitu silkiteppinu," sagði Þröstur og hnippti í Jónas. „Ertu ekki sam- mála Jónas?" En Jónas sagði ekkert og leit bara undan. „Eins og ég sagði áðan - þú virðist vera einn af þessum óþol- andi sniðugu náungum og átt hvorki til tillitsemi né kannt al- menna kurteisi." Það var einhvers konar þreyta í rödd Sævars sem minnti á full- orðinn mann sem var orðinn þreyttur á krakkafíflum. „Oj, ég kafna hér inni," hróp- aði Þröstur. „Komið út áður en ég kafna." Hann þreif í Gústa og Jónas og ruddist með þá út úr dyr- unum. „Lokið á eftir ykkur," kallaði Sævar. „Lokaðu sjálfur, arabahöfðingi," kallaði Þröstur. Gústi losaði um tak Þrastar og lokaði dymnum. „Af hverju þarftu alltaf að láta eins og fífl?" spurði hann og horfði pirraður á Þröst. „Þetta verður herbergisfélagi minn í allan vetur og nú ertu búinn að ergja hann svo að hann verður á- reiðanlega í fylu út í mig það sem eftir er." Æ S K A N 2 3

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.