Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1992, Page 27

Æskan - 01.10.1992, Page 27
FRAMHALDSSAGA LESENDA: OF VENJULEGT - EÐA ... Þá er komið að þriðja hluta framhaldssögunnar. Hlíf fór upp í fjall til að bíða eftir ævintýri. Henni finnst hún sjálf of venjuleg og líf fjöl- skyldu sinnar allt of venjulegt. Allt í einu kemur drengur á gráum hesti. Hann heitir Kári. „Stökktu á bak fyrir aftan mig, “ segir hann við Hlíf. Hún sest á bak hestinum. Kannski er loksins eitthvað ó- venjulegt að gerast... Fyrr en varir þjótum við á- fram eins og elding upp og niður fjallið. Aldrei hefur það verið fegurra en nú. Það hef- ur alltaf verið svo venjulegt og einfalt en nú er það litríkt og margbreytilegt. Það er eins og bíði ævintýri bak við hvern hól og ofan í hverri lautu. Fjallið er sannarlega spennandi! Faxið á hestinum stendur beint upp í loftið eins og gylltar eldtungur. „Hesturinn heitir Gullfaxi," segir Kári upp úr þurru eins og hann hafi lesið hugsanir mínar. „Gullfaxi/' hugsa ég, „ekk- ert nafn gæti hæft honum betur." „Ég lygni aftur augunum og ímynda mér að ég sé orð- in fögur prinsessa í klóm fljúgandi kynjaveru. Þessi kynjavera hefur hala og háls eins og eldspúandi dreki, klær eins og villiköttur og vænghaf eins og örn. Hún þýtur hratt eins og elding. Á þessum leifturhraða stefnir veran á þrumuský, grátt og drungalegt. Ofan á því er kastali hennar, Kastali hvers- dagsleikans. En nú kemur bjargvættur- in, Kári á hestinum sínum Gullfaxa! Hann flýgur um loftin blá hraðar en nokkur önnur vera, jafnvel hraðar en kynjavera hversdagsleik- ans. Hann grípur mig og fer með mig til kastala síns sem er í fjarlægu landi þar sem allt er óvenjulegt og krökkt af óvæntum viðburðum ... Allt í einu stöðvar Kári hestinn. Ég er næstum dottin af baki. Ég skima í kringum mig og mér bregður í brún. Við erum komin í mynni fjarðarins. Svo langt sem augað eygir er sjór. Hann er eins og blá endalaus eyði- mörk. Þorpið er agnarsmátt og skipin eru eins og litlir leikfangabátar. Frystihúsið og skólinn eru á stærð við þumla. Fyrst við erum kom- in svona langt hljótum við að hafa riðið í að minnsta kosti hálftíma. Ekkert heyrist nema gnauðið í vindinum, gargið í sjófuglunum og ör andar- dráttur Gullfaxa sem er byrj- aður að gæða sér á grösun- um sem vaxa hérna á fjalls- brúninni... Framhald. (Höfundur þessa kafla er Berglind Halldórsdóttir 12 ára, Hjallabrekku 27, 200 Kópavogi. Enn þarf að bregöa skjótt viö. Framhald þarf aö berast fyrir 17. nóvember. Höfundar kaflanna sem birtast mega velja sér tvær bækur að laun- um - sjá lista á bls. 55) Æ S K A N 2 7

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.