Æskan - 01.10.1992, Síða 42
/1/or tór ég á strengjamót í Brookline og á mótinu var kökukeppni. Eg, Yuki Yasumoto frá
Japan og Nadine Tierfelder frá Þýskalandi bökuðum sókkulaðikökufiðlu og notuðum soðið
spaghettí í strengi en það skrapp svo saman. Kakan okkar varð í 3. sæti. Margrét systir
hjálpaði okkur við skreytingarnar.
Kæra Æska!
Ég á heima með foreldrum mín-
um í Brookline, Massachusetts í
Bandaríkjunum. Við ætlum að eiga
heima hér í u.þ.b. 2 ár.
Ég fer í 6. bekk í grunnskóla í
haust og systir mín fer í 2. bekk.
IMámsefnið er svolítið öðruvísi en á
íslandi. Við erum látin fylgjast með
innlendum fréttum og heimsfréttum
í blöðunum og þurfum að skrifa um
tvær fréttir úr þeim á hverjum degi
og á föstudögum er fréttagetraun.
Krakkarnir hér eru komnir svolítið
lengra en jafnaldrar þeirra á íslandi
í sumum greinum, til dæmis í stærð-
fræði.
Við þurfum að skrifa mjög mikið
af sögum, Ijóðum og ritgerðum. Við
lærum ekki kristinfræði hér og við
byrjum ekki að læra tungumál fyrr
en í 8. bekk og við lærum ekki
dönsku eða þýsku heldur frönsku.
Við lærum minna í landafræði og hún
er mest um Bandaríkin.
EIGUM AÐ
FYLGJAST MEÐ
FRÉTTUM
Þetta er mynd af mér. Ég heiti Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir og
er 11 ára.
Síðasta selló-
æfing fyrir vor-
tónleika. Við Yuki
Yasumoto,
bekkarsystir mín
frá Japan, spiluð-
um saman. Á
milli okkar sést í
Margréti Láru
systur mína.
Þessi mynd er
tekin i herbergi
okkar Margrétar.
í skólanum er boðið upp á tón-
listarkennslu. Það er hægt að læra á
fiðlu, selló, blokkflautu og svo er
lúðrasveit. Ég læri á selló og það er
mjög gaman. í skólanum eru líka
tveir kórar. Annar kórinn er fyrir 4.
bekk en hinn kórinn er fyrir 5. og 6.
bekk. Ég er í kór og við héldum
tvenna eða þrenna tónleika yfir vet-
urinn. Það eru líka frjálsar íþróttir á
vorin og við keppum um að komast
í skólaliðið. Skólaliðið fer á mót til
4 6 Æ S K A N