Æskan - 01.10.1992, Blaðsíða 48
Umsjón: Ragnheiður Jóna Ármannsdóttir
/£» Ljósmyndir: Margrét Tómasdóttir.
SKÁTAR í HEIMINUM
ERU 26 MILLJÓNIR
Um þessar mundir eru 80 ár
síðan skátastarf hófst á fslandi
en skátar starfa ekki bara á ís-
landi. Nú eru 26 milljónir skáta í meira
en 130 löndum.
Það var árið 1907 sem skátastarf
hófst en þá fór Baden-Powell með
nokkrum drengjum í fyrstu skátaúti-
leguna. Hreyfingin breiddist hratt út
um allan heim og þó fyrstu samgöng-
ur væru með talsvert öðrum hætti þá
en nú liðu ekki nema fimm ár þar til
formlega var stofnað skátafélag á ís-
landi.
Markmiðið með hreyfingunni er
og hefur alltaf verið að gefa börnum
og ungu fólki tækifæri til þroskandi
starfs og leiks og á þann hátt að búa
það undir ábyrga þátttöku í þjóðfé-
laginu. Skátar starfa að mismunandi
verkefnum allt eftir því hver heim-
kynni þeirra eru og hverjaraðstæður
þeirra.
Skátahreyfingin leggur mikla á-
herslu á að allir menn séu bræður og
leitast við að auka skilning milli manna
þótt heimkynni, hörundslitur og trú-
arbrögð séu ólík.
alþjóðaskála þar sem skátar geta
komið og dvalið með öðrum skátum
og tekið þátt í fjölbreyttu starfi. Einnig
eru haldin mörg skátamót þar sem
þátt taka skátar frá mörgum löndum.
Á fjögurra ára fresti eru haldin svoköll-
uð JAMBOREE (heimsmót skáta) sem
eru ógleymanleg þeim sem taka þátt
íþeim. Sumarið 1991 tóku 16 íslensk-
ir skátar þátt í slíku móti en 1987 fóru
112 íslenskir skátar til Ástralíu. Næsta
JAMBOREE verður haldið í Hollandi
1995 og er undirbúningur þegar haf-
inn og er víst að íslenskir skátar munu
fjölmenna þangað.
Á landsmóti íslenskra skáta sem
Samskipti skáta í mismunandi
löndum eru talsverð. Það eru marg-
ar leiðir til að eiga samskipti milli
landa og má segja að skátar noti þær
allar, allt frá því að senda bréf, stund-
um á leyniletri, til samskipta um tölvu-
net nútímans. Skátar ferðast alltaf
talsvert og þá ekki bara í sínu heima-
landi. Þeir heimsækja oft önnurlönd.
Þeir hitta þá gjarnan skáta þar og oft
tekst á stuttum tíma góð vinátta því að
það er svo margt sem skátar eiga
sameiginlegt hvort sem þeir koma frá
fslandi, Japan eða Keníu.
Alþjóðasamtök skáta eiga nokkra
haldin eru á þriggja ára fresti koma
alltaf nokkur hundruð erlendir skát-
ar. Á síðasta landsmóti sem haldið
var við Úlfljótsvatn 1990, voru rúm-
lega 250 erlendir skátar frá 17 þjóð-
um.
Næsta landsmót skáta verður hald-
ið í Kjarnaskógi á Akureyri í júlí 1993.
Nú þegar hafa borist svör frá mörgum
þjóðum þar sem fram kemur að skát-
ar frá þeim hyggist koma og taka þátt
í mótinu. Því má búast við að Lands-
mótið 1993 verði með mjög alþjóð-
legum blæ.
Anna Gunnhildur Sverrisdóttir.
5 2 Æ S K A N