Æskan - 01.10.1992, Blaðsíða 53
um armbönd svo við gætum farið
eins oft og við vildum í öil þau tæki
sem við kærðum okkur um.
Við fórum í Parísarhjólið. Þar var
fínt útsýni. Draugahúsið var alveg
fábært. Þar var líka völundarhús og
þrautir. Það var hallandi gólf sem
við löbbuðum upp og handrið til að
styðja sig við. Samt var þetta erfitt.
Síðast komum við að stiga eins og er
í Kringlunni en hann fór í aðra átt
fyrir hægri fót en þann vinstri. Það
var mjög erfitt en hafðist loks. Þarna
er líka hraðrennibraut (rússíbani)
sem ég fór tvisvar í, í seinna skiptið
með mömmu. Við náðum fremsta
vagninum og það var sko æðislegt
fjör. Stórt víkingaskip var rólandi
þarna og var skemmtilegt en pabba
varð nú hálfflökurt þar. Við fórum í
klessubílana og Sveinbjörn fór líka
í formúlukappakstur en það var bara
fyrir stálpaða krakka.
Við vorum svo þreytt eftir þennan
dag að við tókum leigubíl heim á hótel.
Næsta dag ætluðum við að fara í
rútuferð en það var bara enga rútu
að finna. Þá var hóteleigandinn svo
góður að lána okkur bílinn sinn.
Við ókum eftir hraðbrautum og
sveitavegum. Á einum slíkum fann
pabbi bátasölu sem hann þurfti að
skoða. Hann var alltaf að skoða báta
í Finnlandi enda er nóg af þeim þar.
Þarna er ég að
stýra.
FENGUM
AÐ STÝRA FERJUNNI
Laugardaginn fórum við að skoða
kirkjur. Fyrst skoðuðum við rúss-
neska kirkju en sáum fátt því að ver-
ið var að ryksuga hana. Síðan skoð-
uðum við kirkjuna sem er höggvin
inn í berg, Temppeliaukion kirkko.
Þegar þangað kom var þar brúðkaup
og stuttu seinna annað. Við biðum
bara eftir að þessu lyki og þá mátt-
úm við fara inn. Mikið er kirkjan fal-
leg!
Þennan dag fórum við líka að
leigja okkur báta. Pabbi var á húð-
keip (kajak) og Sveinbjörn Kári líka
en ég og Sigurborg vorum átveggja
manna róðrarbát. Pabbi var snilling-
urinn því að hann var sá eini sem
tókst að hvolfa bátnum sínum. Veðr-
ið var nú samt svo gott að hann var
farinn að þorna mikið þegar við kom-
um upp á hótel til mömmu.
Eldsnemma á sunnudeginum fór-
um við í eins dags ferð á báti til
borgar sem heitir Porvoo á finnsku
en Borgá á sænsku. Þetta er um
tveggja tíma sigling. Á leiðinni feng-
um við að stýra ferjunni. Skipstjór-
inn leiðbeindi okkur hvernig við átt-
um að fara að. Það gekk allt mjög
vel. í Borgará (Borgá) skoðuðum við
fallega kirkju. Þarfórum við á kaffi-
hús sem var mjög gamaldags. Þetta
er gömul borg og sumar göturnar
mjög þröngar.
Á mánudag var pakkað niður og
rölt í búðir því að við þurftum ekki
að leggja af stað fyrr en seint um
kvöld og fengum að hafa herbergin
þangað til. Þennan dag fórum við
krakkarnir aftur á bátaleiguna alveg
ein meðan við biðum eftir mömmu
og pabba sem voru að versla.
Ferðin heim gekk vel en við vor-
um bæði syfjuð og þreytt.
Ég þakka Flugleiðum og Æskunni
fyrir þetta!
Kolbrún Guðríður Haraldsdóttir
vinningshafi ykkar.
Takk, takk, takk, takk, takk!
Æ S K A N 5 7